Hoppa yfir valmynd
15. ágúst 2024 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Umsækjendur um embætti forstjóra Umhverfis- og orkustofnunar

Í kjölfar breytinga á stofnunum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins auglýsti ráðuneytið embætti forstjóra Umhverfis- og orkustofnunar laust til umsóknar í byrjun júlí sl.

 

Sex umsækjendur eru um embætti forstjóra Umhverfis- og orkustofnunar:

  • Björn Arnar Hauksson, deildarstjóri hjá Orkustofnun
  • Gestur Pétursson, M.Sc. iðnaðar- og rekstrarverkfræði
  • Halla María Sveinbjörnsdóttir, lögfræðingur og mannauðsstjóri
  • Markús Ingólfur Eiríksson, doktor í endurskoðun
  • Rakel Rún Karlsdóttir, jarðfræðingur
  • Soffía Björk Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri

Hæfnisnefnd sem skipuð hefur verið af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra mun meta hæfni og hæfi umsækjenda og skila greinargerð til ráðherra. Upplýsingar um hæfnisnefndina er að finna hér.

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum