Hoppa yfir valmynd
16. ágúst 2024 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Fléttustyrkjum úthlutað í þriðja sinn: Tæplega 100 m.kr. til innleiðingar nýsköpunar í heilbrigðisþjónustu

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra nýsköpunar, ásamt styrkhöfum Fléttunnar árið 2024. - mynd

Tíu íslensk nýsköpunarfyrirtæki og frumkvöðlar hljóta alls 12 styrki úr Fléttunni í ár. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, kynnti niðurstöður Fléttunnar árið 2024 við hátíðlega athöfn á Hrafnistu í dag. Þetta er í þriðja sinn sem styrkir eru veittir úr Fléttunni, en tilgangur styrkjanna er að styðja við innleiðingu nýsköpunar í heilbrigðiskerfinu. Í ár verður um 96 milljónum króna dreift til þessara fyrirtækja í þeim tilgangi að innleiða nýja tækni og lausnir í heilbrigðisþjónustu.

Með Fléttunni gefst heilbrigðisstofnunum um allt land tækifæri til að innleiða og nýta áhugaverðar lausnir til að bæta þjónustu við sjúklinga, stytta biðlista og auka hagkvæmni og skilvirkni kerfisins. Stuðningurinn er háður því skilyrði að nýsköpunarfyrirtækin eigi í nánu samstarfi við stofnanir eða fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem skuldbinda sig til að innleiða nýsköpun fyrirtækisins. Fléttan er því brú á milli einkaframtaksins og heilbrigðiskerfisins.

„Við þurfum að veita betri þjónustu í heilbrigðiskerfinu og það gerum við best með innleiðingu tækni og nýrra lausna. Því er mikilvægt að hið opinbera kaupi og nýti nýjar lausnir í sinni starfsemi, lausnir sem eru til þess fallnar að auka gæði þjónustu og spara fjármagn til lengri tíma. Það er mikilvægt að auka skilvirkni og hagkvæmni, ekki aðeins í heilbrigðiskerfinu heldur í öllum opinberum rekstri,“ segir Áslaug Arna.

Alls bárust 44 umsóknir um styrki en opnað var fyrir umsóknir í apríl. Fagráð skipað af háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra lagði mat á umsóknir og hefur ráðherra samþykkt tillögur þess.

Fléttan opnar áður lokaðar dyr

Styrkþegar fyrri ára hafa lýst því að stuðningur úr Fléttunni hafi opnað áður lokaðar dyr þegar kemur að samstarfi nýsköpunarfyrirtækja við aðila í heilbrigðiskerfinu og aðra hagaðila. Þá sé mikilvægt að hafa aðgengi að innleiðingarstyrkjum af þessu tagi ef Ísland ætlar að verða þátttakandi í að þróa heilbrigðistækni, spara kostnað í heilbrigðiskerfinu, uppfæra starfsaðstöðu heilbrigðisstarfsfólks og skila skjólstæðingum þess betri og aðgengilegri þjónustu.

Eftirfarandi verkefni hljóta styrk úr Fléttunni árið 2024:

Sjá einnig:

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum