Hoppa yfir valmynd
16. ágúst 2024 Heilbrigðisráðuneytið, Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Gott að eldast: Samningur undirritaður um samþætta heimaþjónustu í Vesturbyggð

Lúðvík Þorgeirsson, forstjóri HVest, og Gunnþórunn Bender, forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar, undirrita samninginn. - mynd

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða og Vesturbyggð hafa gert með sér samning um rekstur samþættrar heimaþjónustu í sveitarfélaginu. Samningurinn er hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda; Gott að eldast, sem felur í sér heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk með áherslu á að þjónusta sé veitt þegar hennar er þörf, á forsendum fólksins sjálfs og á réttu þjónustustigi. 

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið auglýstu í fyrra eftir samstarfi við sveitarfélög og heilbrigðisstofnanir með þátttöku þeirra í þróunarverkefnum sem hefðu að markmiði að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum. Áhugi fyrir þátttöku var mikill og voru sex heilbrigðisstofnanir og 22 sveitarfélög valin til þátttöku. Þar á meðal voru Heilbrigðisstofnun Vestfjarða og Vesturbyggð sem eru fyrst þátttakenda til að gera með sér samning um samþætta heimaþjónustu. 

Ein þjónustugátt og persónumiðuð nálgun

Samkvæmt samningnum mun Heilbrigðisstofnun Vestfjarða taka að sér rekstur heimastuðnings í samstarfi við sveitarfélagið. Þjónustugátt verður ein sem þýðir að allar beiðnir um þjónustu fara í gegnum eitt kerfi og mat á þeim verður sameiginlegt verkefni félags- og heilbrigðisstarfsfólks. Lögð verður áhersla á persónumiðaða nálgun þar sem fagfólk vinnur saman í teymisvinnu.

Markmiðið með verkefninu er að auka gæði þjónustu fyrir eldra fólk, minnka líkur á að fólk falli á milli þjónustukerfa og fækka innlögnum á sjúkrahús og hjúkrunarheimili. Með samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu er stefnt að því að þjónustan verði í einu flæði og að brugðist sé fljótt við breyttum þörfum notenda.

Það er mat samningsaðila að með samningnum sé stigið mikilvægt skref í átt að betri og skilvirkari þjónustu við eldra fólk í Vesturbyggð, þar sem hámarks nýting fjármuna sé tryggð án þess að það komi niður á gæðum þjónustunnar. Vonir standi til þess að þær breytingar sem samþætting heimaþjónustunnar felur í sér muni leiða til betri lífsgæða fyrir eldri íbúa sveitarfélagsins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum