Hoppa yfir valmynd
16. ágúst 2024 Innviðaráðuneytið

Ráðherra fundaði með landshlutasamtökum sveitarfélaga

Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra tók á móti forsvarsfólki landshlutasamtökum sveitarfélaganna í ráðuneytinu. - mynd

Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra fundaði með formönnum og framkvæmdastjórum allra landshlutasamtaka sveitarfélaga í ráðuneytinu í gær. Landshlutasamtökin óskuðu eftir fundinum í þeim tilgangi að kynna landshlutasamtökin, hlutverk þeirra og verkefni fyrir ráðherra og fá sýn hennar á byggðaþróun.

Góðar og gagnlegar umræður urðu á fundinum en ráðuneytisstjóri og allir skrifstofustjórar ráðuneytisins tóku einnig þátt í fundinum. Talsvert var rætt um sóknaráætlanir landshluta og hverju þær hafa áorkað sem öflugt byggðaþróunartæki, en nú vinna allir landshlutar að endurnýjun sóknaráætlana sinna. Einnig var rætt um lýðræði, samgöngur og skipulagsmál svo nokkuð sé nefnt.

„Það var mjög ánægjulegt að hitta allt það góða fólk sem stendur í stafni í landshlutasamtökunum og kynnast metnaðarfullu starfi þeirra. Það er mjög mikilvægt að styðja við byggðir landsins með kraftmikilli byggðastefnu en heimafólk um land allt vinnur þó þýðingarmesta starfið,“ sagði Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum