Hoppa yfir valmynd
18. ágúst 2024 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Seinni úthlutun úr Tónlistarsjóði: Mikill fjöldi frambærilegra umsókna

Frá vinstri: Hildur Kristín Stefánsdóttir, Gunnhildur Einarsdóttir, Ísleifur Þórhallsson, Sindri Magnússon, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, Hafdís Bjarnadóttir, Guðrún Óskarsdóttir, Kristín Valsdóttir, Ólöf Arnalds, María Rut Reynisdóttir og Anna Rut Bjarnadóttir. Mynd Juliette Rowland.  - mynd

Síðast liðinn fimmtudag fór fram seinni úthlutunarathöfn úr Tónlistarsjóðs 2024 en þetta er í fyrsta sinn sem úthlutað er úr öllum deildum nýs Tónlistarsjóðs.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, ávarpaði styrkhafa og María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar, kynnti nýjungar sjóðsins og umbætur á umsóknarferlinu.

„Það er mikið fagnaðarefni að sjá hversu mörg spennandi verkefni hlutu styrk og ekki síður er það gleðiefni að heyra frá úthlutunarnefndum hve mörg og efnileg verkefni sóttu um. Sú staðreynd að það sé erfitt að velja hver hljóti styrk er mikilvæg vísbending um gróskuna í íslensku tónlistarlífi. Tónlistarmiðstöð er frábær umgjörð sem býður upp á fjölbreytta þjónustu og tækifæri sem ég hvet sem flesta til að kynna sér. Þar er til dæmis boðið upp á ráðgjöf við styrkumsóknir og þangað má sækja innblástur og fagþekkingu frá einvala sérfræðingum,“ sagði Lilja Dögg Alfreðsdóttir, Menningar- og viðskiptaráðherra við tilefnið.

Ráðherra hvatti einnig tónlistarfólk sem og annað listafólk og áhugasama til þess að mæta á opinn kynningarfund á morgun miðvikudag um listamannalaun.

Mikill fjöldi frambærilegra umsókna

Alls bárust 364 styrkumsóknir en til úthlutunar voru 97 milljónir króna. Veittir voru styrkir til 111 verkefna, þar af fjórir langtímasamningar:

  • Kammerhópurinn Nordic Affect fær 2.5 m.kr.til tveggja ára fyrir tónleikadagskrá hópsins árin 2025-2026.
  • Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves fær 6 m.kr. til þriggja ára, 2024-2026, vegna verkefnisins „Sjálfbært showcase - framtíðarstefna Iceland Airwaves“.
  • Tónskáldafélag Íslands hlýtur 4 m.kr. til tveggja ára, 2025-2026 vegna Myrkra músíkdaga.
  • Hlutmengi hlýtur 3 m.kr. til tveggja ára, 2024-2025, vegna tónleikadagskrár í Mengi.

Hæstu Tónlistarstyrki úr deild frumsköpunar og útgáfu fá Daníel Bjarnason, 2,9 m.kr og Nýdönsk, 2 m.kr.

Hæstu Flytjendastyrki úr deild lifandi flutnings fá Kammersveitin Elja með 1,5 m.kr. og Mugison, Sinfóníuhljómsveit Suðurlands, Helgi Rafn Ingvarsson og Hljómsveit Akureyrar hljóta 1 m.kr. hvert.

Hæstu viðskiptastyrki úr deild þróunar og innviða hljóta VibEvent, OPIA Community, Þjóðlagahátíðin á Siglufirði, MetamorPhonics, WindWorks í Norðri, Reykjavík Early Music Festival, Múlinn Jazzklúbbur, LungA, Ascension MMXXIV og BIG BANG upp á 1 m.kr. hvert.

Hæstu markaðsstyrki úr útflutningsdeild hlýtur ADHD upp á 2 m.kr. og viibra upp á 1.5 m.kr.

Frekari upplýsingar um veitta styrki og skiptingu á milli deilda Tónlistarsjóðs.

 

Tónlistarmaðurinn Mikael Máni flutti lag fyrir viðstadda.Tónlistarmaðurinn Mikael Máni flutti lag fyrir viðstadda. Mynd: Juliette Rowland.

Sigtryggur Baldursson tónlistarmaður er einnig listamaður í garðinum og hefur ræktað upp falegan garð á svölum Tónlistarmiðstöðvar. Sigtryggur Baldursson tónlistarmaður er einnig listamaður í garðinum og hefur ræktað upp fallegan garð á svölum Tónlistarmiðstöðvar sem er sannarlega suðupottur góðra hugmynda.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum