Hoppa yfir valmynd
23. ágúst 2024 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Frábær aðsókn að nýju grunnnámi í blaðamennsku við Háskóla Íslands

Tímamót urðu í Háskóla Íslands fyrr í vikunni, þegar kenndur var fyrsti tíminn í nýju BA-námi í blaðamennsku við stjórnmálafræðideild skólans. Fleiri umsóknir bárust um námið en unnt var að samþykkja og eru nú um tuttugu nemendur skráðir. Nemendur munu meðal annars sinna starfsnámi við fjölmiðla landsins á námstímanum, ásamt því að sitja námskeið sem undirbúa þá fyrir störf við fjölmiðla framtíðar.

Með því að bjóða upp á hagnýtt BA-nám í blaðamennsku við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands er stefnt að því að skjóta styrkari stoðum undir almenna menntun blaða- og fréttamanna, koma á skilvirku skiptinámi við aðra háskóla og samþætta námið betur við annað nám á grunnstigi innan deildarinnar. Um leið hefur meistaranám í blaða- og fréttamennsku við deildina verið lagt af.

Stjórnvöld styðja við námið fyrstu þrjú árin með því að menningar- og viðskiptaráðuneytið fjármagnar eitt stöðugildi við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands á tímabilinu, að höfðu samráði við háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið. Stuðningur við grunnnám í blaðamennsku til þriggja ára er hluti af aðgerðaáætlun í fjölmiðlastefnu stjórnvalda, sem gert er ráð fyrir að lögð verði fram á Alþingi í haust.

„Það er frábært að sjá hversu margir hafa áhuga á að stunda nám í blaðamennsku og það tryggir stoðir lýðræðisins að efla íslenska fjölmiðlun með því að fjölga fagmenntuðum blaðamönnum. Fagmennska í fjölmiðlun er lykilatriði og eykur samfélagslegt traust til fjölmiðla. Traustar ritstjórnir eru mikilvægur hlekkur í samfélaginu okkar og liður í að berjast gegn upplýsingaóreiðu og falsfréttum sem fylgja þeim hröðu breytingum sem tilheyra nútímasamfélagi,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum