Hoppa yfir valmynd
27. ágúst 2024 Matvælaráðuneytið

Matvælaráðherra heimsækir landsbyggðina

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra mun heimsækja Patreksfjörð, Raufarhöfn og Þórshöfn dagana 2.-7. september.

Heimsóknirnar eru gerðar með það að markmiði að íbúar byggðarlagana geti hitt ráðherra og átt milliliðalausar samræður um þau málefni sem heyra undir ráðherra.

„Ég tel það skyldu okkar sem störfum í þágu þjóðarinnar að eiga bein samskipti við fólkið í landinu, ekki síst í hinum dreifðari byggðum“ segir matvælaráðherra. „Það er mikilvægt að við fáum að kynnast þeirra sjónarmiðum, besta leiðin til þess er í gegnum samtal“.
Hægt er bóka fund með því að senda póst á [email protected] eða [email protected]

Bjarkey mun heimsækja eftirtalin byggðarlög:

  • Patreksfjörður - Mánudaginn 2. september - Ráðhúsinu, Aðalstræti 75

  • Þórshöfn á Langanesi - Fimmtudaginn 5. september - Kistunni, Fjarðarvegi 5

  • Raufarhöfn - Föstudaginn 6. september - Ráðhúsinu, Aðalbraut 23

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum