Hoppa yfir valmynd
1. september 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Guðmundur Ingi fylgdist með Ólympíumóti fatlaðra í París

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, ásamt sendinefnd Íþróttasambands fatlaðra og fleirum. - myndBjarki Þór Grönfeldt

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, fylgist þessa dagana með Ólympíumóti fatlaðra (Paralympics) í París. Mótið hófst í vikunni og fimm keppendur frá Íslandi taka þátt.

Guðmundur Ingi sá í gær Ingeborg Eide Garðarsdóttur keppa í kúluvarpi. Í morgun fylgdist ráðherra með Má Gunnarssyni keppa í 100m baksundi og Thelmu Björgu Björnsdóttur í 100m bringusundi. Þau komust bæði í úrslit sem fara fram síðdegis í dag og mun ráðherra fylgjast með íslensku keppendunum.

Þá fylgist Guðmundur Ingi á morgun mánudag með Sonju Sigurðardóttur keppa í 50m baksundi, auk þess sem hann heimsækir Ólympíuþorpið.

Ráðherra hefur einnig fylgst með keppni í blindraknattspyrnu, körfubolta, rúgbí, borðtennis, frjálsum og fleiri greinum. 

„Ég er hér með Íþróttasambandi fatlaðra og það er mikill heiður að fá að fylgjast með afreksfólkinu okkar. Hér í París er frábær andi og við getum verið afar stolt af íslensku keppendunum,“ segir Guðmundur Ingi.

Þau sem keppa fyrir hönd Íslands á Ólympíumóti fatlaðra eru:

•          Ingeborg Eide Garðarsdóttir – Kúluvarp

•          Már Gunnarsson – 100m baksund

•          Sonja Sigurðardóttir – 50m baksund og 100m skriðsund

•          Róbert Ísak Jónsson – 100m flugsund

•          Thelma Björg Björnsdóttir – 100m bringusund

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum