Hoppa yfir valmynd
4. september 2024 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur

Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur - myndiStock/StockSeller ukr

Markaður með greiðslumark í mjólk var haldinn þann 2. september. Matvælaráðuneytinu bárust 46 gild tilboð um kaup og sölutilboð voru 27.

Tilboð voru send með rafrænum hætti í gegnum Afurð sem er greiðslukerfi landbúnaðarins og liggur niðurstaða markaðarins nú fyrir.

Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð, sem við lok tilboðsfrests var 398 kr. fyrir hvern lítra. Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverðið 265 kr./ltr.

 

  • Fjöldi gildra tilboða um sölu á greiðslumarki mjólkur voru 27.
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup voru 46.
  • Fjöldi kauptilboða undir jafnvægisverði var 15.
  • Fjöldi sölutilboða yfir jafnvægisverði var 11.
  • Greiðslumark sem boðið var fram (sölutilboð) voru alls 1.435.587 lítrar
  • Greiðslumark sem óskað var eftir (kauptilboð) voru 1.401.020 lítrar
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða (jafnvægismagn) voru 948.900 lítrar að andvirði 251.458.500,- kr.
  • Seljendur með tilboð á jafnvægisverði eða lægra eru 16 talsins og selja 90% af sínu framboðna magni.
  • Kaupendur með tilboð á jafnvægisverði eða hærra eru 31 talsins og fá 100% af eftirspurðu magni í sinn hlut.
  • Tilboð sem uppfylltu skilyrði um forgangsúthlutun til nýliða voru 4.

Sala greiðslumarks fer nú fram samkvæmt gildum tilboðum. Matvælaráðuneytið mun nú senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram. Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast í Afurð.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum