Hoppa yfir valmynd
6. september 2024 Dómsmálaráðuneytið

Sjö umsækjendur um embætti héraðsdómara

Hinn 16. ágúst 2024 auglýsti dómsmálaráðuneytið í Lögbirtingablaði laus til umsóknar tvö embætti héraðsdómara. Annars vegar er um að ræða embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Austurlands sem skipað verður í frá 1. nóvember 2024. Hins vegar embætti dómara sem mun hafa starfsstöð við Héraðsdóm Vestfjarða en sinna störfum við alla héraðsdómstólana eftir ákvörðun dómstólasýslunnar. Skipað verður í það embætti hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara lýkur störfum.

Umsóknarfrestur rann út þann 2. september síðastliðinn og eru umsækjendur eftirtaldir, en allir sækja þeir um bæði embættin:
• Guðfinnur Stefánsson aðstoðarmaður héraðsdómara,
• Hákon Þorsteinsson lögfræðingur,
• Oddur Þorri Viðarsson lögfræðingur,
• Ólafur Egill Jónsson aðstoðarmaður héraðsdómara,
• Sólveig Ingadóttir aðstoðarmaður héraðsdómara,
• Sverrir Sigurjónsson lögmaður,
• Valborg Steingrímsdóttir lögfræðingur.

Umsóknir hafa verið afhentar dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara til meðferðar.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum