Hoppa yfir valmynd
10. september 2024 Matvælaráðuneytið

Aðgerðaáætlun matvælastefnu Íslands gefin út

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur gefið út aðgerðaáætlun matvælastefnu Íslands.

Matvælastefna til ársins 2040 var samþykkt á Alþingi í júní 2023 og er ætlað að vera leiðbeinandi við ákvarðanatöku til að stuðla að aukinni verðmætasköpun í matvælaframleiðslu, tryggja fæðu- og matvælaöryggi og auka velferð fólks í sátt við umhverfi og náttúru.

Sértækar aðgerðaáætlanir á einstökum málefnasviðum eru:

  • Aðgerðaáætlun Lands og lífs – landgræðsluáætlunar og landsáætlunar í skógrækt
    2022-2026
  • Aðgerðaáætlun landbúnaðarstefnu (í vinnslu)
  • Aðgerðaáætlun stefnu um uppbyggingu og umgjörð lagareldis (í vinnslu)
  • Aðgerðaáætlun sjávarútvegsstefnu (í vinnslu)

Í áætluninni er einnig að finna fimm aðgerðir sem liggja þvert á aðrar undirstefnur og er vinna við þær hafin eða fyrir liggur ákvörðun um að ráðast í þá vinnu. Aðgerðirnar eru að mestu eða öllu leyti fjármagnaðar og eru eftirfarandi:

  • Söfnunarkerfi fyrir dýraleifar
  • Stöðumat markmiða um verndun líffræðilegrar fjölbreytni
  • Mótun aðgerða um neyðarbirgðahald á matvælum og nauðsynlegra aðfanga vegna matvælaframleiðslu
  • Matvælaeftirlit verði samræmt
  • Árangur af stuðningi Matvælasjóðs mældur

Aðgerðaáætlunin miðast við næstu fimm ár og verður endurskoðuð árlega og uppfærð ef þörf þykir. Aðgerðaáætlunin var í opnu samráði á Samráðsgátt stjórnvalda í febrúar 2024 og bárust alls 18 umsagnir sem tekin var hliðsjón af eins og unnt var. Umsagnir verða einnig hafðar til hliðsjónar við árlega yfirferð áætlunarinnar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum