Hoppa yfir valmynd
11. september 2024 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2025

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2025. Sjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.

Sjóðnum er heimilt að fjármagna framkvæmdir er snúa að:

  • Öryggi ferðamanna.
  • Náttúruvernd, viðhaldi og uppbyggingu ferðamannastaða og ferðamannaleiða.
  • Fjármögnun undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna áðurgreindra framkvæmda.

Sjóðnum er ekki heimilt m.a.:

  • Að bera rekstrarkostnað af mannvirkjum og vegna náttúruverndarsvæða eða annarra ferðamannastaða.
  • Að fjármagna framkvæmdir sem eru á landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.
  • Veita fjármagni til verkefna sem þegar er lokið.
  • Gæði umsókna

 

Sérstök áhersla lögð á minna sótt svæði og lengingu ferðatímabils

Í úthlutuninni er lögð áhersla á minna sótt svæði og lengingu ferðatímabils. Gæðamat sjóðsins mun taka mið af þessari áherslu og eru umsækjendur hvattir til að kynna sér nýtt gæðamatsblað sjóðsins.

 

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel þau lög og reglur sem um sjóðinn gilda og vanda umsóknir sínar í hvívetna. Umsækjendum er bent á að kynna sér gæðaviðmið sjóðsins sbr. gæðamatsblað ásamt frekari upplýsingum um sjóðinn, skilyrði lánveitenda og umsóknarferlið, sem finna má á umsóknarsíðu.

Hvar ber að sækja um?
Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum island.is en hlekkur á umsókn er á umsóknarsíðu.

Umsóknarfrestur
Umsóknartímabil er frá og með 12. september til kl. 13 fimmtudaginn 15. október. Umsóknir sem berast eftir þann tíma koma ekki til álita.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta