Hoppa yfir valmynd
16. september 2024 Dómsmálaráðuneytið

Dómnefnd skilar umsögn um umsækjendur um embætti dómara við Landsrétt

Þann 14. júní 2024 auglýsti dómsmálaráðuneytið laust til setningar embætti dómara við Landsrétt vegna leyfis skipaðs landsréttardómara. Miðað er við að setning vari til og með 28. febrúar 2029. Umsóknarfrestur var til 1. júlí 2024 og bárust fimm umsóknir um embættið.

Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur skilað umsögn sinni til dómsmálaráðherra og er það mat nefndarinnar að Eiríkur Elís Þorláksson dósent og Eyvindur G. Gunnarsson prófessor séu hæfastir umsækjenda til að hljóta setningu í embættið.
Dómnefndina skipuðu: Sigurður Tómas Magnússon formaður, Helga Melkorka Óttarsdóttir, Jóhannes Sigurðsson, Reimar Pétursson og Þorgeir Örlygsson.

Umsögn dómnefndar 10.9.2024.pdf

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum