Hoppa yfir valmynd
16. september 2024 Matvælaráðuneytið

Opið fyrir umsóknir vegna þróunarverkefna búgreina, garðyrkju, sauðfjárræktar, nautgriparæktar og hrossaræktar

Opið fyrir umsóknir vegna þróunarverkefna búgreina, garðyrkju, sauðfjárræktar, nautgriparæktar og hrossaræktar - myndiStock/george mkheidze

Athygli er vakin á að umsóknarfrestur um þróunarverkefni búgreina er til 1. nóvember 2024.

Auglýst er eftir umsóknum tvisvar á ári.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Afurð, stafrænu stjórnsýslukerfi matvælaráðuneytisins.

Í nautgriparækt eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska nautgriparækt og fela í sér rannsóknir og þróunarverkefni.

Í sauðfjárrækt eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska sauðfjárrækt og falla undir kennslu, rannsóknir, leiðbeiningar og/eða þróun í sauðfjárrækt.

Í hrossarækt eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska hrossarækt og fela í sér að viðhalda verðmæti eiginleika í íslenska hrossastofninum og velferðar hestsins.

Í garðyrkju eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska garðyrkju og falla undir ráðgjafaverkefni, kynningaverkefni, rannsókna- eða tilraunaverkefni, vöruþróunarverkefni, verkefni sem miða að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og endurmenntunarverkefni.

Umóknir berist í Afurð.


Efnisorð

Heimsmarkmiðin

12. Ábyrð neysla og framleiðsla
13. Aðgerðir í loftslagsmálum
17. Samvinna um markmiðin
15. Líf á landi
9. Nýsköpun og uppbygging

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum