Matvælaráðherra flutti opnunarávarp sjávarútvegssýningarinnar
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra flutti í dag opnunarávarp íslensku sjávarútvegssýningarinnar.
Sýningin fagnar nú stórafmæli en 40 ár eru síðan fyrsta sýningin var haldin árið 1984. Í ár mæta rúmlega 400 sýnendur til leiks og koma þeir frá 22 löndum til að sýna allt það nýjasta og besta í sjávarútvegi.
Í ávarpi sínu gerði ráðherra mikilvægi trausts sjávarútvegs ásamt ábyrgri auðlindanýtingu að umtalsefni.
„Okkur hefur tekist að koma á ágætu jafnvægi á milli nýtingar og verndar fiskistofna. Í sögulegu samhengi er þetta mikilvægt, því að ósjálfbærar veiðar voru stórt vandamál hér á árum áður. Með tilkomu kvótakerfisins náðum við tökum á ofnýtingu fiskistofna hér við land, en óhætt er að segja að við höfum að einhverju leyti tapað trausti almennings með tilkomu framsalsins“.
Ráðherra lagði jafnframt áherslu á langtímastefnumótun fyrir sjálfbæran sjávarútveg sem taki mið af umhverfisvernd og hagkvæmri nýtingu auðlinda þar sem tillaga til þingsályktunar um verndun hafsins og frumvarp um verndarsvæði mun spila lykilhlutverk. Markmið tillögunnar er að vernda 30% hafsvæða innan efnahagslögsögu Íslands fyrir árið 2030, í samræmi við samning Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni.
Í lok ávarpsins gerði ráðherra sanngirni og veiðigjöld að umtalsefni.
„Í vetur mun ég leggja fram frumvarp um hækkun veiðigjalda. Endurskoðun þeirra er lykilskref í að tryggja sanngjarna hlutdeild samfélagsins í auðlindarentu sjávarútvegsins. Með hækkun veiðigjalda á tilgreindar uppsjávartegundir, stefnum við í átt að aukinni sanngirni og ábyrgð. Veiðigjöld eru jákvæð fyrir þjóðarbúið — þau stuðla að sanngirni, sjálfbærni og ábyrgri auðlindanýtingu. Þau tryggja að arðurinn af sameiginlegri auðlind renni til þjóðarinnar, styrkja opinbera þjónustu og hvetja til betri og sjálfbærari nýtingar. Þetta mál eins og önnur sem ég hyggst leggja fram í vetur byggir undir traust og ábyrgð í sjávarútvegi“.