Hoppa yfir valmynd
19. september 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Guðmundur Ingi afhenti norræn verðlaun til frumkvöðla á sviði samfélagsmála

Ráðherra ásamt verðlaunahöfum. Frá vinstri til hægri: Maymi Asgari, Amir Ranjbar, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, Panashe Kauhanen og Eleonora Svanberg. - mynd

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda, afhenti í dag verðlaunin Nordic Pioneer Prize í Kaupmannahöfn. Þau eru árlega veitt 18-25 ára eldhugum og frumkvöðlum á Norðurlöndunum sem hafa með hugrekki og frumkvæði leitast við að auka öryggi og samheldni í nærsamfélagi sínu með því að takast á við skautun, hatur og félagslega útskúfun

Sendiráð Norðurlanda í Danmörku standa til skiptis að verðlaunaafhendingunni ásamt Nordic Safe Cities en það eru félagasamtök með þátttöku borga á Norðurlöndum sem vinna að því að styrkja lýðræðisleg gildi og koma í veg fyrir ofstæki- og öfgahyggju á Norðurlöndum. Samtökin voru sett á laggirnar með stuðningi frá Norrænu ráðherranefndinni í kjölfar hryðjuverkaárásanna í Kaupmannahöfn árið 2015. Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn var gestgjafi verðlaunanna í ár.

Útlendingahatur og ofstæki megi ekki verða eðlileg

Guðmundur Ingi lagði við afhendinguna áherslu á að ekki mætti leyfa útlendingahatri og ofstæki að verða eðlileg. 

„Við verðum stöðugt að minna okkur á að við getum glatað frelsinu sem við höfum öðlast. Mikilvægt er að byggja upp betra samfélag þar sem við getum öll dafnað. Til þess þurfum við jákvæðni, góðar fyrirmyndir og samheldni. Við megum ekki standa þegjandi hjá þegar við verðum vitni að órökstuddum staðhæfingum sem kynda undir ótta og hatur,“ sagði ráðherra og undirstrikaði mikilvægi þess að fólk væri ekki óvirkir áhorfendur. 

„Þess vegna erum við hér í dag: Til að fagna þeim sem er ekki sama, þeim sem grípa til aðgerða og sýna samúð, skilning og hugrekki.“

Ráðherra afhenti að því búnu verðlaunin og sagði þau fara til skapandi frumkvöðla sem hefðu hugrekki til að breyta viðhorfum og opna hjörtu fólks fyrir fjölbreytileika: 

  • Eleonora Svanberg er hálfsænsk og hálfpersnesk og stofnaði félagasamtökin Girls in STEM sem vinna að aukinni hlutdeild kvenna í náttúruvísindum. Nú í haust hefur hún nám í hagnýtri stærðfræði við háskólann í Oxford og hefur unnið með UNESCO, framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, Geimferðastofnun Evrópu, Friðarverðlaunum Nóbels og sænska þinginu, svo nokkur dæmi séu tekin.

  • Maymi Asgari er fótboltakona og baráttukona fyrir jafnrétti, ekki síst fyrir konur í minnihlutahópum í íþróttum. Hún berst markvisst gegn fordómum með því að birta efni á samfélagsmiðlum þar sem hún er með höfuðslæðu, eins og hún notar daglega, og sýnir mikla leikni með boltann. Maymi er með mörg hundruð þúsund fylgjendur á samfélagsmiðlum, heldur námskeið þar sem hún kennir ungum krökkum boltafimi og hefur deilt reynslu sinni í skólum af þeirri mismunun sem hún varð fyrir sem barn í Danmörku þegar hún æfði fótbolta með slæðu um höfuðið. Hún öðlaðist heimsfrægð þegar hún fór að birta myndbönd af leikni sinni með boltann fyrir utan aðalleikvang heimsmeistarakeppninnar í fótbolta karla sem fram fór í Katar 2022.

  • Amir Ranjbar er frá Noregi og er leiðtogi Wild X sem eru félagasamtök sem hafa það að markmiði að opna nýjar leiðir fyrir ungt fólk til þess að sækja út í náttúruna. Ungt fólk getur þar farið á veiðar, farið í tjaldútilegur og lært nýjar leiðir í félagsfærni.

  • Panashe Kauhanen er stofnandi Fashcene Underground sem hefur það að markmiði að skapa rými í heimi tískunnar fyrir ungt skapandi fólk með ólíkan bakgrunn. Fashcene er tískusýning með lifandi tónlist og fer fram árlega í Åbo/Turku í Finnlandi. Panashe notar þannig tísku til að stuðla að inngildingu.

Metfjöldi tilnefninga í ár

Norrænu verðlaunin „Nordic Pioneers“ mynda net ungra brautryðjenda þar sem haldið er á lofti því mikilvæga hlutverki sem ungt fólk gegnir við að skapa örugg og lýðræðisleg samfélög. Í ár barst metfjöldi tilnefninga til verðlaunanna og segir Ronas F. Korkmaz, leiðtogi Nordic Pioneers, að valið hafi verið erfitt. 

„Vinningshafarnir í ár eru þó hver fyrir sig einstakt dæmi þess hvernig hægt er að stuðla að félagslegum breytingum. Þau sýna hvert og eitt fram á það hvernig leiðtogahæfni og eldmóður getur skapað jákvæðar breytingar í heiminum.“

Fyrr í dag fundaði Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, með vinningshöfunum og öllum sendiherrum Norðurlanda í Kaupmannahöfn, þar á meðal Pétri Ásgeirssyni, sendiherra Íslands í Danmörku. Fundarefnið var hatursorðræða á netinu og áhrif hennar á lýðræðislega umræðu og lýðræðislega þátttöku meðal ungs fólks.

Ráðherra ásamt verðlaunahöfum. Frá vinstri til hægri: Maymi Asgari, Amir Ranjbar, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, Panashe Kauhanen og Eleonora Svanberg.

Við verðlaunaafhendinguna í dag.

Ráðherra flytur ávarp við verðlaunaafhendinguna. 

Verðlaunahafarnir ásamt Guðmundi Inga Guðbrandssyni, fulltrúum frá Nordic Safe Cities og sendiherrum Norðurlanda í Danmörku, þar á meðal Pétri Ásgeirssyni, sendiherra Íslands í Danmörku.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum