Hoppa yfir valmynd
25. september 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Lagt til að foreldrum sem missa maka sinn verði tryggður réttur til sorgarleyfis

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi þar sem lagt er til að foreldrum sem missa maka sinn sé tryggður réttur til sorgarleyfis. Frumvarpinu er ætlað að styrkja enn frekar stöðu barna og barnafjölskyldna sem verða fyrir áföllum. 

Lög um sorgarleyfi tóku gildi þann 1. janúar 2023 og mörkuðu tímamót. Með þeim var foreldrum tryggður lagalegur réttur til að fá leyfi frá störfum í kjölfar barnsmissis í sex mánuði, sem og greiðslur til að koma til móts við tekjutap á umræddu tímabili. Þá gátu foreldrar nýtt rétt sinn til sorgarleyfis samhliða minnkuðu starfshlutfalli, sem og yfir lengra tímabil. Markmiðið var að tryggja foreldrum á vinnumarkaði svigrúm til sorgarúrvinnslu í kjölfar barnsmissis og eftir atvikum til að styðja við eftirlifandi systkin við að aðlagast breyttum aðstæðum. Ástæða þykir til að styðja enn frekar við foreldra á vinnumarkaði í kjölfar áfalla og því eru lagðar til ofangreindar lagabreytingar sem tryggja fleirum en áður rétt til sorgarleyfis.

Með frumvarpinu er lagt til að foreldri, í skilningi laga um sorgarleyfi, sem verður fyrir því að hjúskapar- eða sambúðarmaki andast geti átt rétt á sorgarleyfi eða sorgarstyrk í allt að sex mánuði. Ljóst þykir að foreldri sem styður við syrgjandi barn á sama tíma og það syrgir sjálft maka sinn upplifir mikið álag. Mikilvægt þykir að veittur sé stuðningur og aukið svigrúm til sorgarúrvinnslu við slíkar aðstæður og foreldrum gert kleift að taka sorgarleyfi.

„Það skiptir miklu máli að fólk fái svigrúm til að vinna úr sorg sinni. Mikilvægt er auk þess að einstaklingar sem verða fyrir áföllum í lífinu haldi sambandi við vinnumarkaðinn eins og þeir treysta sér til hverju sinni. Lög um sorgarleyfi voru mikið framfaraskref og hafa reynst afar vel. Nú vil ég taka skrefið lengra, víkka út sorgarleyfið og láta það einnig ná til foreldra sem missa maka sinn. Með því tryggjum við þeim svigrúm til sorgarúrvinnslu og andrými til að styðja börn sín við að aðlagast breyttum aðstæðum,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra.

Lengra sorgarleyfi í ákveðnum tilfellum

Í frumvarpinu er einnig lagt til að foreldri sem hefur verið í samfelldu starfi skuli eiga sjálfstæðan rétt á sorgarleyfi eða sorgarstyrk í allt að sex mánuði frá þeim degi er andvanafæðing á sér stað eftir 22 vikna meðgöngu. Samkvæmt gildandi lögum á foreldri rétt á þriggja mánaða sorgarleyfi eða sorgarstyrk við slíkar aðstæður. 

Enn fremur er lagt til foreldri geti átt sjálfstæðan rétt til sorgarleyfis eða sorgarstyrks í allt að þrjá mánuði frá þeim degi sem fósturlát eftir 18 vikna meðgöngu á sér stað en samkvæmt gildandi lögum er miðað við tveggja mánaða sorgarleyfi við slíkar aðstæður.

Þá eru lagðar til breytingar sem þykja nauðsynlegar í ljósi reynslunnar af framkvæmd gildandi laga um sorgarleyfi. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum