Hoppa yfir valmynd
27. september 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið auglýsir styrki til félagasamtaka

Auglýst er eftir umsóknum um styrki frá íslenskum félagasamtökum til verkefna og starfsemi sem heyrir undir málefnasvið félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins.

Sjá reglur um úthlutun og fleiri upplýsingar um styrkina

Hægt er að sækja um tvenns konar styrki:

  1. Verkefnastyrkir. Verkefnastyrkir eru veittir til afmarkaðra verkefna sem miða að því að veita einstaklingum og hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf. Styrkir eru m.a. veittir til verkefna sem felast í því að:
    • Útbúa fræðsluefni og standa fyrir fræðslustarfsemi.
    • Vera málsvari og standa vörð um hagsmuni félagsmanna.
    • Bjóða skjólstæðingum upp á stuðning og ráðgjöf.

    Verkefnastyrkir eru alla jafna ekki veittir til lengri tíma en eins árs í senn. Í þeim tilvikum þar sem verktími er lengur en eitt ár er heimilt að veita árlegan styrk til allt að þriggja ára, með fyrirvara um fjárveitingar á fjárlögum hverju sinni. Ekki eru veittir styrkir til sömu verkefna og hljóta styrk á fjárlögum eða verkefna sem falla undir sjóði ráðuneytisins eða samninga við það.

  2. Rekstrarstyrkir. Styrkir eru veittir til reksturs félagasamtaka sem hafa verið starfandi í að lágmarki þrjú ár. Rekstrarstyrkir geta verið veittir til tveggja ára í senn.

Umsóknarfrestur er til 28. október 2024 kl. 13:00.

Umsókn sem berst eftir að umsóknarfresti er lokið verður ekki tekin til umfjöllunar.

Sækja skal um á rafrænu formi á umsóknavef Stjórnarráðsins.

Undir flipanum Eyðublöð eru eyðublöð flokkuð eftir ráðuneytum og stofnunum. Undir félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu eru umsóknareyðublöðin:

  • Umsókn um styrk af safnliðum fjárlaga 2025 til reksturs félagasamtaka sem starfa á málefnasviði félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins.
  • Umsókn um styrk af safnliðum fjárlaga 2025 vegna verkefna á sviði félags- og vinnumarkaðsmála.

Gert er ráð fyrir að úthlutun fari fram eigi síðar en 1. febrúar 2024.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta