Hoppa yfir valmynd
2. október 2024 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Menntaþing 2024 – endurgjöf og framhald

Hvar viljum við vera árið 2030? Lokaávarp mennta- og barnamálaráðherra - mynd

Menntaþing var haldið á mánudag þar sem næstu aðgerðir í menntastefnu til ársins 2030 voru kynntar. Mennta- og barnamálaráðuneytið þakkar þinggestum fyrir framlag sitt og verður það nýtt við endanlega útfærslu á 2. aðgerðaáætlun menntastefnu sem nær yfir árin 2024–2027.

 

Opnunarávarp ungmenna á Menntaþingi

Á þinginu var rætt um stöðu menntakerfisins, hvað verið er að gera og næstu skref í menntaumbótum. Fyrirhugaðar aðgerðir voru kynntar fyrir fullum sal á Hilton Reykjavík Nordica.

Fagmennska, kennaramenntun, virðing og samvinna stóðu upp úr í könnun meðal þinggesta um hvað sé mikilvægast til að efla menntakerfið.

Að lokinni kynningu á fyrirhuguðum aðgerðum komu fram sjónarmið ungmenna, foreldra, kennara, fræðafólks, sveitarfélaga og atvinnulífsins. Í kjölfarið hófst hópvinna um aðgerðirnar.

Hópvinna á Menntaþingi

Áhugasamir sem ekki sáu sér fært að taka þátt eru hvattir til að kynna sér upptökuna og koma tillögum og áherslum á framfæri hér að neðan fyrir 10. október:

Eftir að unnið hefur verið úr niðurstöðum þingsins verður önnur aðgerðaáætlun kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta