Hoppa yfir valmynd
2. október 2024 Matvælaráðuneytið

Þóra Jóhanna skipuð yfirdýralæknir

Þóra Jóhanna Jónasdóttir er nýr yfirdýralæknir. - mynd
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur tekið ákvörðun um að
skipa Þóru Jóhönnu Jónasdóttur í embætti yfirdýralæknis.


Þóra lauk doktorsprófi árið 2002 frá Dýralæknaháskólanum í Noregi (Norges Veterinærhøgskole, NVH) og embættisprófi í dýralækningum árið 1990 frá sama skóla. Þóra stundar meistaranám í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands, hefur lokið leiðsögunámi og námi í sjúkraflutningum.

Þóra hefur starfað hjá Matvælastofnun sem sérgreinadýralæknir frá árinu 2013 og var eftirlitsdýralæknir Suðvesturumdæmis árið 2009. Hún kom að stofnun lyfjaþróunarfyrirtækisins Oncoinvent hf 2010, var framkvæmdastjóri fyrirtækisins fram til ársins 2013 og sat í stjórn þess til ársins 2024. Þóra var umsjónarmaður Dýraauðkennis hjá Dýralæknafélagi Íslands á árunum 2010 til 2014 og verkefnastjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu frá 2000 til 2002. Þóra var um árabil búsett í Noregi og rúmt ár í Bandaríkjunum þar sem hún starfaði sem dýralæknir og lagði stund á kennslu og rannsóknir meðal annars sem dósent og doktor við NVH á árunum 2002 til 2015. Þá var Þóra héraðsdýralæknir hjá embætti yfirdýralæknis í Ísafjarðarumdæmi á árunum 1990 til 1993.

Þóra hefur setið í stjórnum, ráðum, nefndum og hópum tengdum meðal annars heilsu, velferð og vernd dýra sem fulltrúi Íslands í Norðurlandasamstarfi, á vegum Evrópusambandsins og Alþjóðadýraheilbrigðisstofnuninni. Hún hefur ritað fjölda vísindagreina í alþjóðleg ritrýnd tímarit og haldið erindi og kynningar á ráðstefnum bæði hér á landi og erlendis.

Embætti yfirdýralæknis var auglýst laust til umsóknar 4. júlí sl. og bárust fjórar umsóknir um starfið. Matvælaráðherra skipar í embættið til fimm ára að undangengnu mati hæfnisnefndar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta