Hoppa yfir valmynd
3. október 2024 Innviðaráðuneytið

Áætluð framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga árið 2025

Svandís Svavarsdóttir, innviðaráðherra, hefur samþykkt eftirfarandi tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um áætlaðar úthlutanir framlaga á árinu 2025.

Áætluð framlög til útgjaldajöfnunar fyrir árið 2025

Áætluð útgjaldajöfnunarframlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga munu nema alls 17.000 m.kr. árið 2025. Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar þess efnis, sbr. b. liðar 12. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, að fjárhæð 17.000 m.kr.

Til úthlutunar nú koma 16.200 m.kr. samkvæmt A-hluta framlaganna og 575 m.kr. samkvæmt B-hluta framlaganna vegna skólaaksturs úr dreifbýli eða samtals 16.775 m.kr. Í desember 2025 koma til úthlutunar 175 m.kr. til viðbótar vegna skólaaksturs úr dreifbýli á grundvelli umsókna sveitarfélaga vegna íþyngjandi kostnaðar við aksturinn á árinu. Jafnframt er áætlað að 50 m.kr. verði úthlutað á árinu 2025 vegna akstursþjónustu fyrir fatlað fólk úr dreifbýli.

Áætlunin verður tekin til endurskoðunar í apríl 2025 á grundvelli íbúafjölda 1. janúar 2025. Framlögin verða greidd til sveitarfélaga mánaðarlega en 10 prósentum er þó haldið eftir af áætluðum framlögum til að mæta því ef ráðstöfunarfjármagn sjóðsins verður minna eða útgjöld meiri en áætlað var. Uppgjör framlaganna fer fram í desember 2025.

Um er að ræða 1.200 m.kr. hækkun frá áætlun framlaganna á árinu 2024.

Almenn jöfnunarframlög til reksturs grunnskóla

Ráðherra hefur einnig samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða heildarúthlutun almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla á árinu 2025, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 351/2002, að fjárhæð samtals 15.460 m.kr. Þar af eru 60 m.kr. vegna áætlaðs uppgjörs framlaga ársins 2023.

Áætlunin verður tekin til endurskoðunar í apríl 2025 á grundvelli íbúafjölda 1. janúar 2025, endanlegs álagningarstofns útsvars vegna ársins 2023 og  endurskoðunar á áætluðum útsvarstekjum sveitarfélaga á árinu 2024.

Framlögin koma til greiðslu mánaðarlega og taka mið af innkomnum tekjum sjóðsins af 0,77% hlutdeild hans í staðgreiðsluskilum viðkomandi mánaðar. 

Athygli er vakin á því að erfitt er að spá fyrir um skatttekjur ríkissjóðs og áætla hverjar útsvarstekjur sveitarfélaga verða á næsta ári. Því kunna þær heildarfjárhæðir sem varið er til þessara framlaga að breytast.

Framlög vegna sérþarfa fatlaðra grunnskólanemenda

Þá hefur ráðherra jafnframt samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða úthlutun framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna sérþarfa fatlaðra nemenda á grunnskólaaldri á árinu 2025.

Áætlunin verður tekin upp og endurskoðuð í nóvember 2025.

Framlag vegna íslenskukennslu fyrir nemendur með íslensku sem annað tungumál

Ráðherra hefur loks samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætluð framlög vegna íslenskukennslu fyrir nemendur með íslensku sem annað tungumál á árinu 2025, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 351/2002.

Gert er ráð fyrir að endanleg áætlun verði tekin fyrir í mars næstkomandi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta