Hoppa yfir valmynd
3. október 2024 Innviðaráðuneytið

Framlög til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts rúmir 7,7 milljarðar árið 2025

Svandís Svavarsdóttir, innviðaráðherra, hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga þess efnis að framlög til sveitarfélaga til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts sbr. reglugerð nr. 80/2001, nemi samtals um 7.743,3 m.kr. árið 2025. Um 60% af áætlun um úthlutun framlaga ársins komu til greiðslu mánuðina febrúar til júní eða samtals um 4.646 m.kr. Áætlað uppgjör framlaganna, sem nemur 3.097 m.kr., fer fram með þremur jöfnum greiðslum mánuðina júlí, ágúst og september, 1.032 m.kr. í hvert sinn.

Útreikningur framlaganna byggist á upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands um álagningarstofna fasteignaskatts í sveitarfélögum 31. desember 2023, sem gilda fyrir árið 2024. Við útreikning framlaganna er jafnframt tekið mið af álagningarprósentum fasteignaskatts í sveitarfélögum á árinu 2024.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta