Hoppa yfir valmynd
3. október 2024 Innviðaráðuneytið

Tekjujöfnunarframlög áætluð um 1,4 milljarðar árið 2024

Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um áætlaða úthlutun tekjujöfnunarframlaga ársins 2024. Tillagan er samþykkt á grundvelli 13. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 1088/2018. Að teknu tilliti til ráðstöfunarfjármagns sjóðsins nemur áætluð heildarfjárhæð framlaganna 1.400 m.kr.

Við útreikning framlaganna er gengið út frá hámarkstekjumöguleikum sveitarfélaga af útsvari og fasteignaskatti. Framlagið er einungis greitt hafi sveitarfélög fullnýtt heimild sína til álagningar útsvars. Fyrir 1. október koma ¾ hlutar af áætluðum framlögum til greiðslu samtals 1.050 m.kr. Uppgjör framlaganna fer fram í desember á grundvelli leiðréttrar skrár um álagðar skatttekjur sveitarfélaga.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta