Hvati styrktarsjóður: Tilkynnt verður um úthlutun í nóvember
Umsóknartímabili í styrktarsjóð ráðuneytisins Hvata er lokið en tekið var á móti umsóknum 2. - 23. september sl. Hvati veitir styrki til verkefna á málefnasviðum menningar- og viðskiptaráðherra.
Alls bárust 64 umsóknir og er vinnsla þeirra hafin innan ráðuneytisins. Tilkynnt verður um úthlutun í nóvember og verður öllum umsóknum svarað.