Hoppa yfir valmynd
8. október 2024 Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið

Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2024

Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna voru kynntar á alþjóðlegum degi kennara 5. október. Markmið verðlaunanna er að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og ungmennum.

Verðlaunin eru veitt í fjórum flokkum; fyrir framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur, framúrskarandi kennara, framúrskarandi þróunarverkefni og framúrskarandi iðn- eða verkmenntun. Þá verða að auki veitt hvatningarverðlaun til einstaklings, hóps eða samtaka sem stuðlað hafa að menntaumbótum sem þykja skara fram úr.

Tilnefningar hljóta að þessu sinni:

A. Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur

Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki, til skóla eða annarrar menntastofnunar, sem stuðlað hefur að menntaumbótum er þykja skara fram úr. Þessar stofnanir eru tilnefndar:

  • Árskóli á Sauðárkróki fyrir forystu um fjölbreytt og faglegt skólaþróunarstarf sem hefur verið öðrum skólum góð fyrirmynd.
  • Fellaskóli í Reykjavík fyrir fjölmenningarlega og skapandi kennsluhætti þar sem byggt er á virðingu fyrir félagslegum og menningarlegum margbreytileika.
  • Listasafn Íslands fyrir öflugt fræðslustarf og að gefa út Sjónarafl – þjálfun í myndlæsi, metnaðarfullt og framsækið námsefni í mynd- og menningarlæsi sem nýtist ólíkum nemendahópum á öllum skólastigum.

B. Framúrskarandi kennari

Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki til kennara sem stuðlað hefur að menntaumbótum sem þykja skara fram úr. Tilnefndir eru þessir kennarar:

  • Dóra Guðrún Wild kennari við leikskólann Hlaðhamra í Mosfellsbæ, fyrir faglega og metnaðarfulla leikskólakennslu, meðal annars útinám og fyrir að auðga líf barna í Mosfellsbæ með fjölbreyttu lista- og menningarstarfi.
  • Guðrún Sigurðardóttir kennari við leikskólann Gimli í Reykjanesbæ fyrir einstaka fagmennsku og ástríðu í leikskólastarfi þar sem áhersla er lögð á jákvæð samskipti, styðjandi umhverfi, samkennd og traust.
  • Hrafnhildur Sigurðardóttir kennari við Sjálandsskóla í Garðabæ fyrir þróun fjölbreyttrar og hugmyndaríkrar útikennslu, fjölbreyttar valgreinar og leiðsögn við kennara og kennaraefni um útivist og umhverfismennt.
  • Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir kennari við Grunnskóla Borgarfjarðar fyrir þróunarstarf við að innleiða námskrá í kynheilbrigðisfræðslu með áherslu á sjálfs- og líkamsímynd.

C. Framúrskarandi þróunarverkefni

Verðlaun fyrir framúrskarandi þróunarverkefni eru veitt verkefnum sem standast ítrustu gæðakröfur um markmið, leiðir, inntak, mat og kynningu, hafa samfélagslega skírskotun og nýtast til að efla menntun í landinu. Eftirfarandi verkefni eru tilnefnd:

  • Menntun hugar og hjarta – nemandinn sem manneskja: 
    Þróunarverkefni í Háteigsskóla þar sem markvisst er unnið að því að efla sterka tilfinninga-, samskipta- og sjálfsþekkingargreind.
  • Snjallræði – þróunarverkefni í Helgafellsskóla í Mosfellsbæ:
    Heildstæð nýsköpunarkennsla sem nær frá leikskólastigi til unglingastigs.
  • Sviðslistabraut við Menntaskólann á Akureyri: 
    Kjörnámsbraut sem miðar að því að veita nemendum innsýn í töfraheima sviðslistanna og hinar ýmsu hliðar og störf innan sviðslistaheimsins.

D. Framúrskarandi iðn- eða verkmenntun

Ein verðlaun veitt kennara, námsefnishöfundi, skóla- eða menntastofnun fyrir framúrskarandi starf, verk eða framlag til iðn- eða verkmenntunar. Tilnefningar fá:

  • Rafmennt fyrir þróun sveigjanlegs og einstaklingsmiðaðs náms í raf- og tæknigreinum.
  • Verkmenntaskóli Austurlands fyrir að efna til samstarfs við grunnskólana í Fjarðabyggð um framboð á fjölbreyttum verklegum valgreinum.
  • Þröstur Jóhannesson, kennari við Menntaskólann á Ísafirði, fyrir þróun vandaðs verknáms með áherslu á nútímatækni og sjálfbærni.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta