Föstudagspóstur 11. október 2024
Heil og sæl!
Við hefjum leik á gleðifréttum en Ísland hlaut í vikunni kjör í mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna. Nítján ríki voru í framboði fyrir átján laus sæti ráðsins fyrir þriggja ára kjörtímabil sem hefst í byrjun árs 2025 og er til ársloka 2027.
„Mikil ábyrgð felst í því að taka sæti í mannréttindaráðinu sem hefur það helsta markmið að efla og vernda mannréttindi um heim allan. Við erum þakklát fyrir þann breiða stuðning sem okkur var sýndur í kosningunum í dag og við tökum við þessu verkefni af auðmýkt og alvöru, tilbúin að leggja okkur öll fram,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra.
Today, #UNGA elected #Iceland along with 17 other Member States to the #HumanRightsCouncil for a three year 2025-2027 🗳️
— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) October 9, 2024
Sincere thanks for all the support 🙏 pic.twitter.com/okEtxzQWyr
Áskoranir í öryggismálum, samstarf á norðurslóðum og tvíhliða varnarsamstarf Íslands og Bandaríkjanna voru meðal málefna sem rædd voru á fundi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra með Charles Q. Brown, formanni bandaríska herráðsins. Um var að ræða fyrstu heimsókn formanns bandaríska herráðsins til Íslands í áraraðir.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tók þátt í ríkisheimsókn Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, til Kaupmannahafnar í vikunni.
Í ferðinni átti utanríkisráðherra einnig tvíhliða fund með utanríkisráðherra Danmerkur, Lars Løkke Rasmussen.
Á mánudag minntist utanríkisráðherra þess að ár væri liðið frá hryðjuverkaárás Hamas á Ísrael.🇩🇰 UM @larsloekke: "Island er blandt Danmarks tætteste venner. Vi deler både værdier, interesser og stærke historiske bånd. Godt møde med 🇮🇸UM @thordiskolbrun i dag om bl.a. det nordiske samarbejde, og DK’s nye strategi for styrket engagement med de afrikanske lande.”#dkpol pic.twitter.com/4reTlu1Xau
— Denmark MFA 🇩🇰 (@DanishMFA) October 8, 2024
A year has passed since Hamas' horrific terrorist attack on Israel. As we remember the victims and the survivors, Iceland continues to call for the immediate and unconditional release of all hostages.
— Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir🇮🇸 (@thordiskolbrun) October 7, 2024
Iceland condemned, in the strongest terms, this most fatal attack on Jews…
Yfirmenn hermála á Íslandi, Bandaríkjunum, Danmörku, Noregi, Finnlandi, Kanada og Svíþjóð héldu fund á öryggissvæðinu í Keflavík á miðvikudag þar sem öryggismál á norðurslóðum voru til umræðu.
Í gær fór fram árlega friðarráðstefnan Imagine Forum Höfða friðarseturs Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands í samstarfi við utanríkisráðuneytið. Bergdís Ellertsdóttir sendiherra og staðgengill ráðuneytisstjóra flutti opnunarerindi og Hermann Þór Ingólfsson sendiherra tók þátt í samtali með Svitlönu Zalishchuk, ráðgjafa í ríkisstjórn Úkraínu og fyrrverandi þingmanni. Hér er hægt að horfa á ráðstefnuna.
Skrifstofustjóri alþjóðapólitískra málefna og fulltrúar sendiráðs tóku þátt í reglubundnum samráðsfundi Norðurlanda og Eystrasaltsríkja með Bandaríkjunum í Washington í vikunni um alþjóðapólitík og öryggismál.
Earlier this week Political Directors from the Nordic & Baltic states met with @StateDept 🇺🇸 in DC for their regular political & security consultations, EPINE. Good discussion on shared interest & values between solid partners 🇮🇸🇸🇪🇳🇴🇫🇮🇩🇰🇱🇻🇱🇹🇪🇪🇺🇸 @MFAIceland pic.twitter.com/MtCajYWtvt
— Iceland in US 🇮🇸 (@IcelandInUS) October 9, 2024
Að venju var nóg um að vera hjá starfsfólki okkar úti á pósti í vikunni. Starfsfólk sendiráðs Íslands í Kaupmannahöfn hafði í nógu að snúast í tengslum við ríkisheimsókn forseta Íslands. Óhætt er að mæla með Instagram-yfirtöku sendiráðsins á reikningi utanríkisþjónustunnar þar sem fylgjendur gátu skyggnst bakvið tjöldin í heimsókninni. Efnið er aðgengilegt í „Highlights“.
Högni Kristjánsson sendiherra Íslands í Osló átti vinnufundi í Aþenu en Grikkland er eitt af þremur umdæmisríkjum sendiráðsins.
Nú um helgina opnar einmitt grísk-íslenska myndlistarhátíðin HEAD2HEAD í Reykjavík. Nánari upplýsingar um hana hér að neðan:
Samstarf og tengsl Íslands og Maine-ríkis voru í forgrunni heimsóknar sendiherra til Maine í vikunni. Sendiherra fundaði með hinum ýmsu aðilum t.d. fulltrúum Eimkipa sem eru með höfuðstöðvar sínar í Portland Maine. Einnig heimsótti sendiherra og fylgdarlið þjóðvarðlið Maine (Maine National Guard) í höfuðstöðvum þeirra í Augusta þar sem þau fengu kynningu á víðtækri starfsemi þeirra. Sendinefndin fékk við það tækifæri að fylgjast með stöðufundi þjóðvarðliðsins í aðgerðastjórn þeirra með öllum 54 ríkjum og yfirráðsvæðum Bandaríkjanna í tengslum við björgunaraðgerðir vegna fellibylsins Milton í Flórída.
Í Maine átti sendiherra afar góðan fund með Chellie Pingree, þingkonu Demókrataflokksins frá Maine sem er einn stofnenda sérstaks Íslandsvinahóps meðal þingmanna fulltrúadeildar Bandaríkjaþings.Great visit to Maine this week highlighting the strong ties between Iceland & Maine. Ambassador @svanhildurholm & team visited @Eimskip Iceland’s largest shipping company which has its 🇺🇸 headquarters in Portland. pic.twitter.com/k8ld4vY4hY
— Iceland in US 🇮🇸 (@IcelandInUS) October 11, 2024
Anna Jóhannsdóttir, fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, flutti ávörp í annarri og þriðju nefnd Sameinuðu þjóðanna í allsherjarþinginu í vikunni.Thank you for the warm welcome in Maine @chelliepingree. Relations between Iceland & the state of Maine are strong and we look forward to seeing them growing even further. https://t.co/oY2ZW8ADA9
— Iceland in US 🇮🇸 (@IcelandInUS) October 10, 2024
🇮🇸PR @annajohannsd in the #SecondCommittee at #UNGA79:
— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) October 7, 2024
“We remain committed to #2030Agenda. Last year, we increased our core funding to our @UN partners. In this landscape of multiple crises, flexible & predictable funding is more important than ever”
👉 https://t.co/EkA4BvZMbs pic.twitter.com/sZQ9LgTxWo
"We not only pride ourselves on valuing our #diversity and #genderequality, but we have seen first-hand that these values have also made us a stronger society and a more prosperous one."
— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) October 9, 2024
PR @annajohannsd in #ThirdCommittee today pic.twitter.com/nw6kLAaEUE
Í London sóttu Jóhanna Jónsdóttir, varamaður sendiherra, og Brynja Jónasdóttir, annar sendiráðsritari, athöfn til heiðurs sjómönnum í St Pauls dómkirkjunni.
Haustmessa íslenska safnaðarins í London var einnig haldin í vikunni.
Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands í Tókýó, fundaði með Yoshiko Ikeda, sem fer fyrir sjálfbærnimálum hjá NTT DATA Group.
Sendiráð Íslands í Póllandi tók á móti Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra í vikunni sem fundaði með pólskum starfssystkinum sínum og heimsótti íslensk fyrirtæki í Póllandi.Great meeting with Yoshiko Ikeda, Senior VP, Head of Sustainability Innovation at NTT DATA Group. We had a productive discussion on advancing gender equality and innovative green energy solutions. #Sustainability #GenderEquality #GreenEnergy #NTTDATA pic.twitter.com/HVZnfCA8v4
— Stefan H Johannesson (@stefanhaukurj) October 11, 2024
Strengthening trade cooperation between Iceland and Poland is our common goal. We would like to thank Minister @KrzysztofPaszyk for an extremely substantive conversation on innovation in business relations between our countries.
— IcelandinPoland (@IcelandinPL) October 11, 2024
🇮🇸🇵🇱@MFAIceland @liljaalfreds @FridrikJonsson https://t.co/KAjWVhYovv
Icelandic-Polish cultural cooperation is a key element of our bilateral relations. Thank you for this important meeting at the @kultura_gov_pl. https://t.co/ez6nLursZH
— IcelandinPoland (@IcelandinPL) October 11, 2024
Minister of Culture and Trade @liljaalfreds met with representatives of 🇮🇸 companies in 🇵🇱, as well as people promoting Icelandic culture.
— IcelandinPoland (@IcelandinPL) October 10, 2024
Minister Alfreðsdóttir highlighted her personal ties with Poland, viewing them as key to fostering cooperation between the two countries. pic.twitter.com/4aTr7TB8xI
Fyrrverandi starfsmenn finnska umhverfisráðuneytisins heimsóttu sendiherrahjónin í Helsinki í vikunni og fengu leiðsögn um Gallerie Kaytava og fræddust um sjálfbærniáherslur Íslands.
Sendiherrahjónin tóku sömuleiðis á móti hópi frá Ríkisendurskoðun á dögunum.
Þórir Ibsen, sendiherra Íslands í Peking, og Inga Dóra Pétursdóttir, varamaður sendiherra, funduðu með Charlotte Zhao hjá Arctic Green Energy.
It was great to meet CFO @CharlotteXZhao to hear how #ArticGreenEnergy became instrumental in exporting 🇮🇸success in #geothermal & #RenewableEnergy to 🇨🇳. The joint 🇮🇸🇨🇳 venture has already improved life quality for 3 m people with clean energy heating and cooling technologies 👏🏽 pic.twitter.com/AET9m6jLsv
— Inga Petursdottir (@IngaDoraP) October 11, 2024
Stjórn Samtaka atvinnulífsins heimsótti sendiráð Íslands í Brussel í síðustu viku.
Hannes Heimisson, aðalræðismaður Íslands í Færeyjum, fundaði með Bjørt Samuelsen forseta Lögþingsins, í gær.
Alþjóðadegi kennara var fagnað í Malaví.
Á dögunum var því fagnað við Vínarháskóla að 40 ár eru liðin frá stofnun deildar norrænna tungumála. Helga Hauksdóttir, sendiherra Íslands í Vín, ávarpaði gesti við athöfnina og talaði meðal annars um mikilvægi tungumála fyrir sjálfsmynd þjóðar.
Aðalræðisskrifstofa Íslands í Nuuk birti mynd frá nýlegri heimsókn forseta og varaforseta Norðurlandaráðs, ásamt Kristinu Háfoss framkvæmdastjóra Norðurlandaráðs.
Varamaður sendiherra í París, Una Jóhannsdóttir, var viðstödd opnun sýningarinnar LANDSCAPE GAME var opnuð í galleríinu Un Coin de Ciel í 14. hverfi Parísarborgar í gær. Þar sýna listamennirnir Stéphanie Rivray, Christophe Gibourg og Ivan Toulouse verk sín sem eru innblásin af íslenskri náttúru. Öll eiga listamennirnir það sameiginlegt að hafa dvalið á Íslandi og unnið í ljósmyndum, teikningum og þrykklituðum myndum af náttúru Íslands.
Í dag var lögð inn umsókn Íslands um tilnefningu Svæðisgarðsins Snæfellsness á skrá UNESCO yfir svonefnd MAB eða Maður og lífhvolfssvæði (e. Man and Biosphere). Yrði Snæfellsnes fyrsta UNESCO MAB svæðið á Íslandi og tengir verkefnið náttúru- og félagsvísindi við efnahagsmál, menntun og rannsóknir til þess að bæta lífsgæði og stuðla að bættri afkomu íbúa, og vernda náttúruleg og manngerð vistkerfi. Hér má sjá Áslaugu Dóru Eyjólfsdóttur, aðalritara landsnefndar UNESCO, afhenda dr. António Abreu, ritara MAB verkefnisins, umsókn Íslands í höfuðstöðvum UNESCO í París.
Today, Iceland🇮🇸 submitted the nation's first Biosphere Reserve nomination to the @UNESCO_MAB Programme. Snæfellsnes Biosphere Reserve will be a driving force in the region's work towards the SDGs, ensuring sustainable use of natural resources, while preserving the local culture. pic.twitter.com/eyd8GFqhLd
— L’Islande à Paris 🇮🇸 (@IcelandinParis) October 11, 2024
Fleira var það ekki að þessu sinni. Góða helgi!
Upplýsingadeild