Hoppa yfir valmynd
15. október 2024 Heilbrigðisráðuneytið, Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Gott að eldast: Samningur Heilbrigðisstofnunar Vesturlands og Húnaþings vestra undirritaður

Frá undirritun samnings um rekstur samhæfðrar þjónustu fyrir eldri borgara í sveitarfélaginu - mynd

Húnaþing vestra og Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) hafa undirritað samning um rekstur samhæfðrar þjónustu fyrir eldri borgara í sveitarfélaginu. Samningurinn, sem tekur gildi 1. janúar 2025, er byggður á aðgerðaáætlun stjórnvalda, "Gott að eldast", sem samþykkt var á Alþingi þann 10. maí 2023.

Markmið samningsins er að veita heildræna og skilvirka félags- og heilbrigðisþjónustu í heimahúsum, með það að markmiði að tryggja örugga búsetu eldri borgara og að þeir geti dvalið heima við sem eðlilegastar aðstæður. HVE mun annast rekstur þjónustunnar.

Í gegnum samstarfið verður lögð áhersla á að veita þjónustu og umönnun á einum stað, þar sem félagsleg þjónusta, heimahjúkrun og dagdvöl verða sameinuð. Markmið er að bæta nýtingu fjármuna og mannafla, innleiða velferðartækni og fjarheilbrigðisþjónustu.

Undirbúningur framkvæmdar þjónustunnar er hafinn og aðilar munu vinna að því að tryggja að núverandi þjónusta verði aðlöguð að nýju mati á þörfum þjónustunotenda.

Samningurinn gildir til 31. desember 2027 og verður endurskoðaður árlega í samræmi við þróun þjónustunnar og þarfir eldri borgara í Húnaþingi vestra.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta