Hoppa yfir valmynd
15. október 2024 Utanríkisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ísland og Brasilía undirrita tvísköttunarsamning

Bergdís Ellertsdóttir, sendiherra og staðgengill ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins, og Rodrigo de Azeredo Santos sendiherra handsala samninginn. - mynd

Tvísköttunarsamningur milli Íslands og Brasilíu var undirritaður í húsakynnum utanríkisráðuneytisins við Austurhöfn í gær. Samningurinn, sem nær til tekjuskatta, var undirritaður af Bergdísi Ellertsdóttur, sendiherra og staðgengli ráðuneytisstjóra, fyrir hönd Íslands og Rodrigo de Azeredo Santos, sendiherra, fyrir hönd Brasilíu.  

Markmið samningsins er að koma í veg fyrir tvísköttun á atvinnurekstur, fjárfestingar, laun, tekjur milli ríkjanna og vinna gegn skattundanskotum. Með því að ryðja úr vegi skattalegum hindrunum auðveldar samningurinn starfsemi fyrirtækja og vinnu einstaklinga milli ríkjanna og hvetur til gagnkvæmra fjárfestinga. Þá jafnar samningurinn samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja og launþega á erlendum vettvangi og eykur fyrirsjáanleika þeirra í viðskiptum og störfum. 

Brasilía er mikilvægt viðskiptaland Íslands og hefur samningurinn verið lengi í undirbúningi en  brasilísk stjórnvöld eiga sömuleiðis í aðildarviðræðum við Efnahags- og framfarastofnunina (OECD). Tvísköttunarsamningurinn er að stórum hluta í samræmi við stefnumörkun OECD í tvísköttunarmálum og tekur jafnframt mið af stefnumörkun Sameinuðu þjóðanna.  

Samningurinn er liður í stefnu stjórnvalda um að fjölga tvísköttunarsamningum og tryggja þannig aðgang íslenskra fyrirtækja að fjármagni og vinnuafli en jafnframt gera þeim og launþegum kleift að stunda viðskipti og störf sín erlendis, án tvískattlagningar. 

Á næstu mánuðum verður unnið að fullgildingu samningsins. 

  • Bergdís Ellertsdóttir, sendiherra og staðgengill ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins, og Rodrigo de Azeredo Santos sendiherra ásamt samninganefnd Íslands úr fjármála- og efnahagsráðuneytinu. - mynd
  • Frá undirritun tvísköttunarsamningsins. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta