Hoppa yfir valmynd
15. október 2024 Matvælaráðuneytið

Skráning hafin á Matvælaþing 2024

Skráning er hafin á Matvælaþing sem haldið verður í Silfurbergi í Hörpu 5. nóvember n.k.

Dýravelferð og hugmyndafræði Einnar heilsu (e. One Health) eru meginviðfangsefni þingsins sem er nú haldið í þriðja sinn.

Í störfum sínum hefur Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra lagt aukna áherslu á ábyrgt dýrahald og velferð dýra með hliðsjón af hugmyndafræði þar sem heilsa manna, dýra og umhverfis mynda eina órofa heild. Dýravelferð er mikilvægur hluti þeirrar stefnu og samræmist markmiðum laga um velferð dýra. Þingið er öllum opið en til að koma í veg fyrir matarsóun er krafist skráningar, hægt er að skrá þátttöku á þinginu hér.

Fyrirlesarar þingsins eru:

Maarten Hoek frá Lýðheilsu- og umhverfisstofnun Hollands flytur fyrirlestur á þinginu um áskoranir og ávinning sem tengjast Einnar heilsu stefnunni í alþjóðlegu samhengi. Maarten hefur unnið að One Health Strengthening Europe verkefninu, samvinnuverkefni evrópskra stofnana sem miðar að því að styrkja stefnuna í Evrópu.

Dr. Rebeca García Pinillos er stofnandi og framkvæmdastjóri One Welfare CIC samtakanna sem vinna að auknum skilningi á tengslum umhverfisverndar við velferð dýra og manna. Umfjöllunarefni fyrirlesturs Rebecu verður Ein velferð stefnan (e. One Welfare) sem er útvíkkun á Einnar heilsu stefnunni og tengir saman velferð dýra, velferð manna og umhverfisvernd. Ein velferð byggir á hugmyndinni um að velferð dýra hafi bein og óbein áhrif á velferð manna og umhverfisins og öfugt.

Vigdís Tryggvadóttir, sérgreinadýralæknir hjá Matvælastofnun mun einnig flytja fyrirlestur um Einnar heilsu stefnuna í íslensku samhengi og Sigurborg Daðadóttir, fyrrum yfirdýralæknir og sérfræðingur hjá matvælaráðuneytinu, mun flytja fyrirlestur undir heitinu Dýrahald og siðferði þar sem fjallað verður um margvíslegar hliðar dýrahalds og þær áskoranir sem því fylgja.

Sigurborg Daðadóttir, fyrrum yfirdýralæknir og sérfræðingur hjá matvælaráðuneytinu, mun flytja fyrirlestur undir heitinu Dýrahald og siðferði þar sem fjallað verður um margvíslegar hliðar dýrahalds og þær áskoranir sem því fylgja.

Dagskrá Matvælaþings

Fundarstjóri: Brynja Þorgeirsdóttir

09.00 Silfurberg opnar – morgunverður á Eyri

9.30 Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra setur Matvælaþing

09.45 Maarten Hoek frá Lýðheilsu- og umhverfisstofnun Hollands
          Harmonized One Health Networks

10.15 Vigdís Tryggvadóttir, sérgreinadýralæknir hjá MAST
          Í anda Einnar heilsu – staðan á Íslandi

10.40 Vandræðaskáld

10.45 Pallborð - Ein heilsa í stjórnkerfinu?

  • Þórólfur Guðnason – fyrrum sóttvarnalæknir og formaður starfshóps um viðnám við útbreiðslu syklalyfjaónæmis
  • Charlotta Oddsdóttir – deildarstjóri hjá Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum
  • Hrönn Ólína Jörundsdóttir - forstjóri MAST
  • Hrönn Egilsdóttir – sviðsstjóri hjá Hafrannsóknastofnun

11:10 Kaffihlé

11.30 Pallborð – Ein heilsa í matvælaframleiðslu?

  • Guðrún Hulda Pálsdóttir – ritstjóri Bændablaðsins
  • Sveinn Margeirsson – framkvæmdastjóri nýsköpunar og loftslagsmála hjá Brimi
  • Gauti Geirsson - framkvæmdastjóri fiskeldisfyrirtækisins Háafells
  • Ingvi Stefánsson – framkvæmdastjóri svínabúsins Teigs11:55 Hádegisverður

13.00 Sigurborg Daðadóttir, sérfræðingur hjá matvælaráðuneytinu og fyrrum yfirdýralæknir.
         Dýrahald og siðferði

13.30 Pallborð - Menn og dýr

  • Anna Berg Samúelsdóttir - stjórnarmaður í Dýraverndarsambandi Íslands
  • Eyja M. J. Brynjarsdóttir - prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands
  • Gunnhildur Jakobsdóttir - iðjuþjálfi hjá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra
  • Þóra Jóhanna Jónasdóttir - yfirdýralæknir MAST

13.55 Bjarni Töframaður

14.00 Dr. Rebeca García Pinillos, stofnandi og framkvæmdastjóri One Welfare CIC samtakanna
          One Welfare - a holistic approach to animal welfare

14.20 Viðtal við Dr. Rebecu García Pinillos

14.35 Pallborð – Dýr og matur

  • Guðlaugur Birkisson, prófessor við landbúnaðardeild háskólans í Helsinki
  • Kristín Inga Vésteinsdóttir, skipulagsfræðingur og höfundur bókarinnar Ull og arfleifð
  • Sandra Sóllilja Blöndal, gæðastjóri framleiðslu GPNT.
  • Sverrir Sigurðarson, verkefnastjóri rannsókna hjá hugverkastofunni Fararheill

14.45 Samantekt Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra

15.00 Þinglok


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta