Hoppa yfir valmynd
16. október 2024 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Málþing: Kynferðisofbeldi gegn börnum með notkun gervigreindar

Mennta- og barnamálaráðuneytið og Háskóli Íslands boða til málþings um hættuna á misnotkun gervigreindar og tækninýjunga til að brjóta kynferðislega á börnum. Með nýrri tækni blasir við nýr veruleiki sem vekur upp spurninguna um hvernig rétt sé að bregðast við. Málþingið fer fram föstudaginn 25. október kl. 13:30–15:15 í Veröld, húsi Vigdísar, að Brynjólfsgötu 1 í Reykjavík og í streymi.

Ein af hverjum átta stúlkum og konum sem nú lifa hefur orðið fyrir nauðgun eða kynferðisofbeldi fyrir 18 ára aldur samkvæmt gögnum UNICEF. Ef kynferðisofbeldi á netinu er bætt við stækkar hópurinn í eina af hverjum fimm. Þótt algengara sé að brotið sé á konum þá hafa 240–310 milljónir drengja orðið fyrir nauðgun eða kynferðisofbeldi í æsku eða einn af hverjum ellefu. Talan hækkar í 410–530 milljónir ef kynferðisofbeldi á netinu er tekið með.

Málþingið er haldið í tengslum við alþjóðlega vinnustofu í Reykjavík dagana 23. og 24. október um gerð alþjóðastaðals um Barnahús. Ætlunin er að staðla uppsetningu, rekstur og virkni á hinu íslenska Barnahúsi á alþjóðavísu en fjölmörg ríki hafa þegar hafið rekstur Barnahúsa að íslenskri fyrirmynd.

Von er á tugum sérfræðinga til landsins vegna þessa. Þeir munu vinna að því, ásamt íslenskum sérfræðingum, að tryggja að viðurkennt stjórnunarkerfi um Barnahús verði aðgengilegt um allan heim. Verkefnið er unnið á vettvangi alþjóðlegu staðlasamtakanna ISO í samstarfi Íslenskra staðla og sænsku staðlasamtakanna SIS.

Mennta- og barnamálaráðuneytið, sem leiðir verkefnið, og Háskóli Íslands hafa fengið fjóra þátttakendur vinnustofunnar til að varpa ljósi á þá dökku hlið hvernig gervigreind og önnur stafræn tækni er misnotuð til að brjóta kynferðislega á börnum, hvaða birtingarmyndir eru af slíkum brotum, hvernig tekist er á við slíkt og til hvaða forvarnaraðgerða er gripið.

Málþingið er ætlað aðilum sem starfa við málefnið og öðrum áhugasömum. Það er opið og þátttakendum að kostnaðarlausu en skráningar er þörf. Skráningarfrestur er til og með 23. október.

Málþingið fer fram á ensku. Boðið verður upp á léttar veitingar frá kl. 13:00 og hefst formleg dagskrá kl. 13:30. Málþinginu stjórnar Páll Magnússon, hjá fastanefnd Íslands í Genf og formaður vinnustofusamþykktar ISO/IWA 49.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta