Hoppa yfir valmynd
17. október 2024 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherrar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna heimsóttu Úkraínu og Moldóvu

Pasi Rajala, aðstoðarutanríkisráðherra Finnlands, Gabrielius Landsbergis, utanríkisráðherra Litháens, MargusTsahkna, utanríkisráðherra Eistlands, Maria Malmer Stenergard, utanríkisráðherra Svíþjóðar, Andrii Sybhia, utanríkisráðherra Úkraínu, Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, Baiba Braže, utanríkisráðherra Lettlands, Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs, og Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins. - myndMFA Úkraína

Utanríkisráðherrar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna heimsóttu Úkraínu í gær. Andrii Sybhia, utanríkisráðherra Úkraínu, átti fund með ráðherrunum í hafnarborginni Odesa. Heimsóknin hófst með því að lagður var blómsveigur að minnismerki um fallna hermenn. Þá kynntu fulltrúar hafnaryfirvalda og fyrirtækja í matvælaframleiðslu fyrir ráðherrunum mikilvægi áburðar- og kornúflutnings frá Odesa fyrir matvælaöryggi á heimsvísu.

Á fundi sínum með Sybhia áréttuðu ráðherrarnir staðfastan stuðning Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna við varnarbaráttu Úkraínu. Auk þess ræddu ráðherrarnir áskoranir Úkraínu í orkumálum vegna þeirrar gríðarmiklu eyðileggingar sem orðið hefur á orkuinnviðum landsins af hálfu Rússlands. Af því tilefni var tilkynnt að ríkin muni leggja sérstaka áherslu á stuðning í orkumálum á komandi vetri. 

Heimsóknin til Úkraínu kom í framhaldi af heimsókn til Moldóvu á þriðjudag þar sem Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin undirstrikuðu stuðning sinn við lýðræðislegar og efnahagslegar umbætur í Moldóvu á sama tíma og landið hefur mátt þola ítrekaðar fjölþáttaárásir af hálfu Rússlands. Ráðherrarnir funduðu annars vegar með Dorin Recean forsætisráðherra og hins vegar með Mihail Popșoi utanríkisráðherra. Undirrituð var yfirlýsing um samstarf NB8 ríkjanna og Moldóvu í utanríkismálum. 

Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, tók þátt í heimsóknunum í fjarveru utanríkisráðherra. Hann var einnig meðal frummælenda í pallborðsumræðum um Evrópusamstarf í háskólanum í Balti í Moldóvu, ásamt utanríkisráðherrum Danmerkur og Litháens.

  • Torbjörn Sohlström, skrifstofustjóri í sænska utanríkisráðuneytinu, Margus Tsahkna, utanríkisráðherra Eistlands, Gabrielius Landsbergis, utanríkisráðherra Litháens,Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, Dorin Recean, forsætisráðherra Moldóvu, Baiba Braže, utanríkisráðherra Lettlands, Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs, Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, Pasi Rajala, aðstoðarutanríkisráðherra Finnlands. - mynd
  • Ráðherrarnir heimsækja hersjúkrahús í Odesa. - mynd
  • Ráðherrarnir minnast fallinna hermanna og borgara Úkraínu. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta