Hoppa yfir valmynd
18. október 2024 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Samstarf um Bláma endurnýjað

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Þorsteinn Másson, framkvæmdastjóri Bláma.  - mynd

Umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytið, Landsvirkjun, Orkubú Vestfjarða og Vestfjarðastofa hafa endurnýjað samstarf sitt um Bláma til ársins 2026, en samstarfsverkefnið sem verið hefur í gangi frá  2021 styður við orkuskipti og verðmætasköpun á Vestfjörðum og landinu öllu. 

Blámi hefur á síðustu þremur árum haft frumkvæði að og stutt við fjölmörg orkuskiptaverkefni í þéttu samstarfi við fyrirtæki með sérstaka áherslu á sjávartengda starfsemi. Blámi hefur unnið náið með stærstu fiskeldisfyrirtækjum á Íslandi, sveitarfélögum, bátasmiðjum, tæknifyrirtækjum og menntastofnunum og hóf nýverið samstarf við innviðafélag Vestfjarða um að styðja við frekari innviðauppbyggingu í fjórðungnum.

Þorsteinn Másson hefur verið framkvæmdastjóri Bláma frá upphafi en auk hans hafa Tinna Rún Snorradóttir og Anna María Daníelsdóttir starfað hjá Bláma ásamt sumarstarfsmönnum. Starfsemi Bláma verður í framhaldi endurnýjunar samstarfsins efld með nýrri starfsstöð á sunnanverðum Vestfjörðum. 

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra:

„Við höfum lagt áherslu á að styðja við Vestfirði á undanförnum misserum og þátttaka ráðuneytisins í Bláma gefur okkur tækifæri til að virkja það hugvit, auðlindir og þekkingu sem fyrir hendi er svo árangur náist í orkuskiptum og orkutengdri nýsköpun. Sameiginlegt átak og stuðningur öflugra aðila skiptir sköpum svo vel takist til og það er ánægjulegt að ráðuneytið geti verið slíkur bakhjarl.“

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar:  

Markvist og vel skilgreint samstarf er lykillinn að árangri í orkuskiptum og orkutengdri nýsköpun. Með áframhaldandi stuðningi við Bláma væntum við þess að hægt verði að hrinda í framkvæmd enn fleiri raunhæfum verkefnum sem styðja við loftslagsmarkmið Íslands og aukna sjálfbæra verðmætasköpun á Vestfjörðum og um allt land.“

Sigríður Ó. Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Vestfjarðastofu:

„Blámi hefur verið áhersluverkefni Sóknaráætlunar Vestfjarða síðustu ár og hefur reynst afar árangursríkt verkefni fyrir heildarhagsmuni Vestfjarða. Samstarf starfsmanna Vestfjarðastofu og Bláma hefur skilað fjölda árangursríkra umsókna fyrirtækja og stofnana á svæðinu í fjölmarga sjóði og þannig átt hlut í að auka fjármagn til nýsköpunarverkefna á Vestfjörðum. “

Elías Jónatansson, orkubússtjóri Orkubús Vestfjarða:

„Samstarf Bláma og Orkubúsins hefur skilað árangri sem er jafnvel umfram væntingar. Styrkleiki Bláma felst í að leiða saman hagsmunaaðila í orkuskiptum og nýsköpun á Vestfjörðum með því að setja fókusinn á hvernig megi koma hugmyndum í verk innan tiltekins tímaramma og hvaða áhrif slík verkefni geti haft fyrir samfélagið á Vestfjörðum. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs.“

 


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta