Hoppa yfir valmynd
18. október 2024 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Stafræn meðmælasöfnun framboða til alþingiskosninga 2024

Stafræn meðmælasöfnun framboða til alþingiskosninga 2024 - myndHaraldur Jónasson / Hari

Landskjörstjórn opnaði í gær stafrænt meðmælakerfi fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember og geta stjórnmálasamtök sem hafa fengið úthlutuðum listabókstaf frá dómsmálaráðuneytinu nú stofnað stafræna meðmælasöfnun fyrir framboð sín í öllum kjördæmum. Stafræna meðmælakerfið var unnið í samstarfi Stafræns Íslands og Þjóðskrár og var þróun þess komin áleiðis þegar ljóst varð að kosið yrði í lok nóvember. Síðustu daga var því unnið hratt að því að ljúka þróun sem til þurfti til að geta opnað kerfið fimmtudaginn 17. október.

Vel samstilltur hópur um stafrænu lausnina frá Stafrænu Íslandi, Landskjörstjórn, Þjóðskrá og hugbúnaðarteymi frá Júní og Stefnu unnu að verkefninu og voru nýttar nokkrar af kjarnaþjónustum Stafræns Íslands, á borð við Ísland.is, innskráning fyrir alla og umsóknakerfi Stafræns Íslands.

Kerfið sem var unnið byggðist á meðmælakerfi úr forsetakosningunum í vor með nokkrum aðlögunum og vísar vefurinn kosning.is nú á alþingiskosningarnar. Notendur geta nú mælt með þeim framboðum sem hafið hafa söfnun meðmæla á Ísland.is.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta