Hoppa yfir valmynd
22. október 2024 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Traustari fasteignakaup: Skýrsla starfshóps um breytingartillögur á sviði fasteignakaupa

Menningar- og viðskiptaráðherra hefur birt drög að tillögum starfshóps um gerð tillagna að lagabreytingum á sviði fasteignakaupa í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Var starfshópnum falið að bregðast við efni þingsályktunar nr. 23/151, um ástandsskýrslur fasteigna, og móta tillögur til breytinga á viðeigandi lögum um fasteignakaup í samræmi við efni þingsályktunarinnar, með áherslu á réttaröryggi og aukna neytendavernd.

Með tillögunum er brugðist við efni fyrrnefndrar þingsályktunar er varðar aðallega ástandsskoðanir fasteigna, framkvæmd þeirra og ábyrgð á göllum, ásamt öðrum tillögum er miða allar að því að auka gæði og skilvirkni í fasteignaviðskiptum.

Helstu nýmæli sem lögð eru til, eru breyting á réttarstöðu við fasteignakaup:

  1. Að aukin verði skylda seljanda til upplýsingagjafar um ástand fasteignar sem hann býður til sölu, með því að gera að lagaskyldu að seljandi fylli út og undirriti spurningalista með stöðluðum spurningum um ástand og viðhald fasteignar.
  1. Að lögfest verði heimild í lög um fasteignakaup, nr. 40/2002, um að kaupandi geti, innan 48 klst. frá því að samþykki kauptilboðs kemst til vitundar hans, óskað eftir því að fram fari ástandsskoðun á þeirri fasteign sem um ræðir.

 

Auka öryggi neytenda og draga úr tjóni

Tillögurnar leggja upp með að bæta upplýsingar um ástand fasteignar sem leiða til fækkunar á ágreiningsmálum í kjölfar sölu á íbúðarhúsnæði. Þannig aukast líkur á að mögulegir gallar á fasteign verði leiddir í ljós á fyrri stigum viðskiptanna.  Með tillögum starfshópsins er öllum tilboðsgjöfum gert jafnt undir höfði og dregið úr líkum á því þegar að mikil eftirspurn er eftir íbúðarhúsnæði að kaupandi sinni ekki skoðunarskyldu sinni, sem og seljandi upplýsingaskyldu sinni.

Ríkari leiðbeiningarskylda af hálfu fasteignasala við sölu fasteignar verður að teljast eðlileg afleiðing þeirra nýmæla sem lögð eru til, bæði varðandi veitingu upplýsinga til seljanda um þýðingu upplýsingagjafar og til kaupanda með ráðleggingum um heimildina til að óska eftir ástandsskoðun fasteignar í samræmi við útfyllingu spurningalista af hálfu seljanda fasteignar. Með því móti ætti fasteignasölum að vera gert auðveldara að gæta hagsmuna bæði kaupanda og seljanda í fasteignaviðskiptum.

Samhliða því að bregðast við efni þingsályktunarinnar var starfshópnum falið að taka til skoðunar aðrar tillögur á sviði fasteignakaupa er varða hlutverk fasteignasala og fyrirkomulag tilboðsgerðar- og samþykkta auka möguleika á fyrirkomulagi á úrlausn ágreinings kaupenda og seljenda utan dómstóla. Þótti starfshópnum rétt að áfangaskipta þeim breytingum sem lagðar eru til og hefur einblínt á tillögur er varða ástandsskoðun fasteigna, framkvæmd og ábyrgð á þeim. Starfshópurinn telur hins vegar tilefni til að vekja athygli á afstöðu sinni til þeirra atriða og hvetur til frekari skoðunar á þeim.

Miða tillögurnar að því að auka neytendavernd og réttaröryggi á sviði fasteignakaupa, með því að tryggja að kaupandi, seljandi og fasteignasali séu í betri stöðu en áður til þess að sinna lagaskyldum og gæta hagsmuna sinna Tillögurnar eru í samræmi við áherslur í tillögu til þingsályktunar um stefnu í neytendamálum til 2030, og aðgerðaáætlun hennar, sem lögð hefur verið fram á 155. löggjafarþingi.

Óskað er eftir umsögnum um tillögur starfshópsins, sem finna má í heild sinni hér. Tillögurnar eru í samráðsgátt til 22. nóvember.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta