Hoppa yfir valmynd
23. október 2024 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Kristján Geirsson tímabundið settur forstjóri Orkustofnunar

Kristján Geirsson. - mynd

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur sett Kristján Geirsson, sviðsstjóra Sjálfbærrar auðlindanýtingar hjá Orkustofnun, tímabundið til áramóta í embætti forstjóra Orkustofnunar.

Kristján tekur við embættinu af Höllu Hrund Logadóttur, sem farin er í tímabundið leyfi að eigin ósk, vegna framboðs til Alþingis. Ný Umhverfis- og orkustofnun tekur til starfa 1. janúar á næsta ári og hefur Gestur Pétursson, verið skipaður forstjóri hennar.

Kristján hefur verið staðgengill forstjóra Orkustofnunar frá því sumarið 2024, en hann hóf störf hjá Orkustofnun árið 2014 og hefur gegnt stöðu sviðsstjóra Sjálfbærrar auðlindanýtingar frá 2023. Kristján hefur starfað við stjórnsýslu umhverfis-, orku- og auðlindamála frá árinu 1995.

Kristján er með doktorsgráðu í jarðfræði með áherslu á bergfræði og steindafræði frá Université Pierre et Marie Curie 1993 og meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu (MPA) með áherslu á umhverfis- og auðlindarétt frá Háskóla Íslands 2016.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta