Hoppa yfir valmynd
27. október 2024 Forsætisráðuneytið

Volodómír Selenskí kemur til Íslands

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og Volodómír Selenskí, forseti Úkraínu á fundi í Stokkhólmi í maí sl. - myndRegeringskansliet

Volodómír Selenskí, forseti Úkraínu, kemur til Íslands á morgun. Í heimsókn sinni mun hann funda með Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra og taka þátt í fjórða leiðtogafundi Norðurlandanna og Úkraínu.

Selenskí mun einnig ávarpa gesti á þingi Norðurlandaráðs sem hefst í Reykjavík á þriðjudaginn. Þá mun Selenskí einnig eiga fund með forseta Íslands.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta