Hoppa yfir valmynd
29. október 2024 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Samstarfsvettvangur um netöryggi kynntur til sögunnar

 

Nýr samstarfsvettvangur stjórnvalda og atvinnulífs um netöryggi verður kynntur til leiks á fundi í Hörpu í dag. Fundurinn hefst klukkan 14 þar sem fimm ræðumenn munu fara yfir helstu málefni á þessu sviði. Samstarfsvettvangurinn er á forræði háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðuneytisins sem fer með netöryggismál.

Tilgangur vettvangsins er að stuðla að auknu samtali og samstarfi milli einkageirans og hins opinbera á sviði netöryggis, en stofnun vettvangsins er liður í aðgerðaráætlun stjórnvalda í netöryggi sem kynnt var til sögunnar árið 2022. Þar er m.a. tekið fram að nauðsynlegt sé að styrkja og formgera samstarf stjórnvalda og atvinnulífsins um netöryggismál og hefur ráðuneytið haft veg og vanda af því að koma slíku samstarfi á legg. Nú, tveimur árum síðar, er komið að því að kynna samstarfsvettvanginn formlega til sögunnar.

Nánari upplýsingar um fundinn má nálgast hér og dagskrá hans er eftirfarandi:

Dagskrá fundarins:

Fundarstjóri:

Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir
Defend Iceland

14:00   Samvinna við netöryggi

  • Birgir Rafn Þráinsson
  • Formaður netöryggisráðs

14:15   Um starfsemi og þjónustu CERT-IS fyrir Íslenska netumdæmið

  • Guðmundur Arnar Sigmundsson
  • Forstöðumaður CERT-IS

14:30   Netöryggiskönnun Eyvarar

  • Ásta Guðrún Helgadóttir
  • Rannsakandi í netöryggi, Háskóli Íslands

15:00   Kaffihlé

15:30   Eyvör og samstarfsvettvangurinn

  • Daði Gunnarsson
  • Verkefnastjóri Eyvarar

15:50   Lokaorð ráðherra

  • Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
  • Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

16:00 Fundarlok og léttar veitingar

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta