Umbætur alþjóðlegra fjármálastofnana og fjármögnun þróunar í brennidepli á ársfundi Alþjóðabankans
Samstaða með Úkraínu, áhyggjur af vaxandi átökum í Mið-Austurlöndum og Súdan og mikilvægi þess að tryggja öfluga fjármögnun til fátækustu ríkjanna í gegnum Alþjóðabankann bar hæst í ávarpi Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna á ársfundi Alþjóðabankans í Washington D.C. í síðustu viku. Fjármálaráðherra Lettlands flutti ávarpið fyrir hönd kjördæmi Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna.
„Samstaða Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna með Úkraínu í varnarbaráttunni gegn árásarstríði Rússlands er feiknasterk og lýsir sér meðal annars í nánu samstarfi innan kjördæmisins. Þar að auki hafa ríkin öll áhyggjur af vaxandi átökum víða um heim, ekki síst þróun mála í Mið-Austurlöndum og mannúðarástandinu á Gaza,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra. „Alþjóðabankinn gegnir veigamiklu hlutverki þegar kemur að aðstoð við þróunarríki, bæði þegar kemur að viðbrögðum við áföllum en kannski ekki síður þegar kemur að uppbyggingu og efnahagslegri þróun til lengri tíma.“
Samhliða ársfundinum funduðu fulltrúar utanríkisráðuneytisins stuttlega með Ajay Banga, forseta Alþjóðbankans.