Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis fyrir alþingiskosningar 30. nóvember
Sendiráð Íslands í Berlín vekur athygli á utankjörfundaratkvæðagreiðslu fyrir alþingiskosningar, sem haldnar verða 30. nóvember næstkomandi.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst hjá sendiráðum og kjörræðismönnum Íslands fimmtudaginn 7. nóvember. Í sendiráðinu verður hægt að greiða atkvæði alla virka daga fram að kosningum á opnunartíma sendiráðsins frá kl. 9:00-12:00 og 13:00-16:00.
Athugið að kjósendur eru vinsamlegast beðnir um að bóka tíma fyrirfram, helst með dags fyrirvara, vilji þeir greiða atkvæði í sendiráðinu í Berlín, annað hvort í síma +49 30 5050 4000, eða með tölvupósti á netfangið [email protected].
Atkvæðagreiðslan fer fram í ræðisdeild sendiráða Norðurlandanna á horni Rauchstraße og Klingelhöferstraße (sjá mynd). Kjósendur þurfa að gera ráð fyrir örstuttri öryggisleit og skulu framvísa gildum persónuskilríkjum með mynd.
AUKAOPNUNARTÍMI
Sendiráðið býður upp á aukaopnunartíma til utankjörfundaratkvæðagreiðslu laugardaginn 23. nóvember frá kl. 9:00-16:00. Ekki er nauðsynlegt að skrá sig fyrir aukaopnunartímann.
Upplýsingar um kjörræðismenn Íslands í umdæmisríkjum sendiráðsins má finna á heimasíðu sendiráðsins, hér.
Athygli er vakin á því að kjósendur bera ábyrgð á að koma atkvæði sínu á réttan stað. Hægt er að setja bréfið í póst, eða afhenda það einhverjum sem kjósandi felur að koma því til skila. Fram að kjördegi er kjörstjóra skylt, ef kjósandi óskar þess, að koma bréfinu í póst.
Nánari upplýsingar er að finna á eftirfarandi síðum:
Stjórnarráðið | Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna alþingiskosninga 30. nóvember 2024