Starfshópur skipaður um mönnunarviðmið á hjúkrunarheimilum
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem falið er að móta tillögur ásamt tímasettri áætlun um það hvernig ná megi gæðaviðmiðum um mönnun á hjúkrunarheimilum hér á landi. Hópnum er ætlað að skila niðurstöðum sínum til ráðherra eigi síðar en 1. febrúar 2025. Hópurinn er skipaður á grundvelli yfirlýsingar heilbrigðisráðherra við undirritun kjarasamings Eflingar stéttarfélags og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu 2. október síðastliðinn.
Starfshópurinn hefur m.a. til hliðsjónar fyrirliggjandi vinnu vegna umönnunar á hjúkrunarheimilum, skýrslur þar um og viðmið embættis landlæknis frá árinu 2015.
Samhliða vinnu starfshópsins mun landsráð um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu, leggja mat á forsendur viðmiða embættis landlæknis og eftir atvikum endurskoðun þeirra, m.a. með tilliti til öryggis og gæða.
Ráðgjafafyrirtækið Gemba ehf. leiðir vinnu starfshópsins sem er svo skipaður:
- Dagmar Huld Matthíasdóttir, án tilnefningar
- Helga Atladóttir, án tilnefningar
- Karl Óttar Einarsson, tilnefndur af Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu
- Viðar Þorsteinsson, tilnefndur af Eflingu stéttarfélagi
- Henný Hraunfjörð, tilnefnd af embætti landlæknis
- Elmar Hallgríms Hallgrímsson, tilnefndur af Sjúkratryggingum Íslands
- Sandra B. Franks, tilnefnd af Sjúkraliðafélagi Íslands