Hoppa yfir valmynd
4. nóvember 2024 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur

Markaður með greiðslumark í mjólk var haldinn þann 1. nóvember. Matvælaráðuneytinu bárust 35 gild tilboð um kaup og sölutilboð voru 24.

Tilboð voru send með rafrænum hætti í gegnum AFURÐ sem er greiðslukerfi landbúnaðarins og liggur niðurstaða markaðarins nú fyrir.

Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð, sem við lok tilboðsfrests var 398 kr. fyrir hvern lítra. Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverðið 250 kr./ltr.

  • Fjöldi gildra tilboða um sölu á greiðslumarki mjólkur voru 24.
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup voru 35.
  • Fjöldi kauptilboða undir jafnvægisverði var 6.
  • Fjöldi sölutilboða yfir jafnvægisverði var 4.
  • Greiðslumark sem boðið var fram (sölutilboð) voru alls 1.268.229 lítrar
  • Greiðslumark sem óskað var eftir (kauptilboð) voru 913.450 lítrar
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða (jafnvægismagn) voru 778.450
  • lítrar að andvirði 194.612.500,- kr.
  • Seljendur með tilboð á jafnvægisverði eða lægra eru 20 talsins og selja 76% af sínu framboðna magni.
  • Kaupendur með tilboð á jafnvægisverði eða hærra eru 29 talsins og fá 100% af eftirspurðu magni í sinn hlut.
  • Tilboð sem uppfylltu skilyrði um forgangsúthlutun til nýliða voru 2.

Sala greiðslumarks fer nú fram samkvæmt gildum tilboðum. Matvælaráðuneytið mun nú senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram. Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast í Afurð.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta