Leggja til orkuöflun, eflingu dreifikerfisins og stofnun þjóðgarðs í Dalabyggð
Tryggja þarf flutningsgetu raforku, styðja við jarðhitaleit, skoða aðra möguleika til orkuöflunar og stofna þjóðgarð til að efla samfélagið í Dalabyggð. Þetta kemur fram í skýrslu starfshóps sem Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, skipaði til að vinna tillögur um aðgerðir sem heyra undir málefnasvið ráðuneytisins og stuðlað geta að því að efla samfélagið í Dalabyggð.
Starfshópurinn var skipaður þeim Sigurði Rúnari Friðjónssyni, sem var formaður hópsins, Höllu Steinólfsdóttur og Birni Bjarka Þorsteinssyni. Kjartan Ingvarsson, lögfræðingur í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, var starfsmaður hópsins.
Helstu niðurstöður starfshópsins eru að forgangsmál sé að tryggja flutningsgetu á raforku til Dalabyggðar. Að mati hópsins liggur beinast við að það verði gert með nýjum jarðstreng frá Stykkishólmi að Glerárskógum, Búðardal. Slík uppbygging sé nauðsynleg til að tryggja samkeppnishæfni svæðisins, greiða fyrir orkuskiptum og skapa forsendur fyrir sókn nýrra atvinnuvega.
Starfshópurinn leggur einnig til að ráðuneytið vinni tillögur um friðlýsingarkosti í Dalabyggð og að stofnaður verði þjóðgarður í sátt við íbúa og hagsmunaaðila. Samhliða verði unnið að uppbyggingu innviða og m.a. horft til þess að koma upp gestastofu þjóðgarðs í Ólafsdal.
Þá leggur starfshópurinn til aðgerðir til að styðja við græna atvinnuuppbyggingu, að stutt verði jarðhitaleit, að skoðaðir verði möguleikar á orkuöflun og að stutt verði við nýsköpun og frumkvöðlastarf á svæðinu.
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Ég fagna tillögum starfshópsins, sem sýna enn og aftur mikilvægi þess að orkumálum okkar verði komið í betri farveg, enda er það ein undirstaða þess að hægt sé að styðja við græna atvinnuuppbyggingu. Mér finnast sömuleiðis hugmyndir hópsins um stofnun þjóðgarðs í Dalabyggð áhugaverðar og það er ánægjulegt að upplifa aukna jákvæðni íbúa og hagsmunaaðila víða um land til hugmynda um þjóðgarða og ég fagna frumkvæði heimafólks í þessum málum.“