Hoppa yfir valmynd
6. nóvember 2024 Heilbrigðisráðuneytið

Nýr Blóðbankabíll

Ég hvet alla sem geta til að leggja sitt af mörkum með því að gefa blóð og gera það reglulega“ segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. - mynd

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur samþykkt að veita 50 milljónir króna í kaup á nýjum blóðsöfnunarbíl fyrir Blóðbankann. Landspítalinn mun ráðast í útboð um kaup á bílnum og gert er ráð fyrir að hægt verði að taka hann í notkun fyrri hluta næsta árs.

Blóðbankinn er með einn blóðsöfnunarbíl í rekstri. Í fjárfestingaráformum Landspítala hefur verið sett í forgang að bæta við öðrum bíl sem er minni en sá sem fyrir er. Sá gæti farið víða um land og talið líklegt að með því mætti laða að nýja blóðgjafa.

Með nýjum bíl er hægt að auka stöðugleika í rekstri og ná til fleiri blóðgjafa Til lengri tíma litið er horft til þess að endurnýja eldri bílinn og styrkja þannig enn frekar getu Blóðbankans til að ná betur til landsmanna og fjölga blóðgjöfum. Með því styrkist rekstur Blóðbankans og birgðastaða hans verður jafnari og öruggari.

Blóðgjafar gegna gríðarlega mikilvægu hlutverki

Blóðbankinn þarf um 12.000 blóðgjafir á ári hverju til að mæta þörfum sjúklinga, eða um 250 á viku. Reglulega þarf að kalla sérstaklega eftir blóðgjöfum þegar birgðastaðan er lág, enda mikilvægt að sjúklingar geti fengið blóð með litlum fyrirvara.

„Það verður aldrei of oft sagt að blóðgjöf er lífgjöf. Við þurfum að fá enn fleiri til þess að mæta, ég hvet alla sem geta til að leggja sitt af mörkum með því að gefa blóð og gera það reglulega“ segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta