Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í Svíþjóð vegna alþingiskosninga
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í Svíþjóð vegna alþingiskosninga 30. nóvember 2024 hefst þann 7. nóvember.
Sendiráðið vekur sérstaka athygli á eftirfarandi:
- Það er á ábyrgð kjósanda að sjá til þess að atkvæðið berist til kjörstjórnar, þar sem viðkomandi er skráður á kjörskrá, í tæka tíð. Það er til dæmis hægt að gera með því að senda atkvæðið með pósti eða með því að fela öðrum að koma því til skila.
- Sendiráðið hvetur kjósendur til að gera ráð fyrir hugsanlegum töfum á póstsendingum og senda atkvæði sín tímanlega. Samkvæmt upplýsingum frá Postnord tekur sending almennra bréfa frá Svíþjóð til Íslands að lágmarki 3 til 5 daga og telst sendingardagur þá ekki með.
- Kjósendur verða beðnir að gera grein fyrir sér, t.d. með framvísun íslensks skilríkis með kennitölu eða með öðrum hætti sem kjörstjóri metur fullnægjandi.
- Kjósendur geta kannað hvort og hvar þeir eru á kjörskrá með því að fletta upp kennitölu sinni á heimasíðu Þjóðskrár.
Fyrirkomulag verður með eftirfarandi hætti:
Stokkhólmur
Tekið verður á móti kjósendum í sendiráðinu í Stokkhólmi alla virka daga frá klukkan 9:30 til 15:30. Ekki þarf að bóka tíma eða boða komu.
Sérstakur aukaopnunartími verður í sendiráðinu á eftirfarandi dögum:
- Laugardaginn 16. nóvember - frá klukkan 12:00 – 16:00.
- Vikan 18.– 22. nóvember: Framlengdur opnunartími til kl. 18:00.
- Laugardaginn 23. nóvember - frá klukkan 12:00 – 16:00.
Sendiráðið er staðsett að Kommendörsgatan 35, 114 58 Stokkhólmi, sími +46 8 442 8300.
Gautaborg
Kjörræðismaður Íslands í Gautaborg tekur á móti kjósendum í safnaðarheimilinu við Västra Frölunda kirkju á Frölunda Kyrkogata 2, Gautaborg á eftirfarandi tímum:
- Laugardaginn 16. nóvember frá klukkan 11:00-14:00.
- Þriðjudaginn 19. nóvember frá klukkan 16:00 til 19:00.
- Fimmtudaginn 21. nóvember frá klukkan 16:30 – 19:30.
Hægt er að hafa samband við Christinu Nilroth, aðalræðismann Íslands í Gautaborg, í síma +46 70 570 40 58 eða með tölvupósti; [email protected].
Malmö/Lund
Kjörræðismaður Íslands í Malmö/Höllviken hefur nýverið látið af störfum. Vinnu við skipun nýs kjörræðismanns verður ekki lokið fyrir kosningar og því verður ekki hægt að kjósa hjá ræðismanni í Malmö fyrir alþingiskosningar þann 30. nóvember 2024.
Vegna þessa mun fulltrúi sendiráðsins í Stokkhólmi taka á móti kjósendum í Malmö og Lund (einn dag í hvorri borg) skv. eftirfarandi:
- Malmö - Miðvikudaginn 20. nóvember kl. 11:00 til 18:00
Staðsetning: Spaces Epic, Nordenskiöldsgatan 11 A, Malmö (sjá kort hér).
- Lund - Fimmtudaginn 21. nóvember kl. 12:30 til 17:00
Staðsetning: Vänskapens hus, Bredgatan 19, Lund (sjá kort hér)
Ekki þarf að boða komu sína fyrir fram.
Þeir sem ekki geta kosið á umræddum dögum hafa kost á að kjósa í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn.
Karlstad/Hammarö
Tekið verður á móti kjósendum eftir samkomulagi á Bärstavägen 22, Hammarö á tímabilinu 13.-20. nóvember. Hafa skal samband við kjörræðismann til að bóka tíma:
Madeleine Ströje Wilkens, ræðismaður Íslands í Karlstad/Hammarö
Sími: +46 73 59 000 44
Tölvupóstur: [email protected]
Nánari upplýsingar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu má nálgast hér en einnig má hafa samband við sendiráðið ef spurningar vakna í síma +46 8 442 8300 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].