Hoppa yfir valmynd
7. nóvember 2024 Utanríkisráðuneytið

Utankjörfundaratkvæðagreiðslur á Kanaríeyjum og Torrevieja

Alþingishúsið við Austurvöll. - mynd

Utanríkisráðuneytið stendur fyrir tveimur sérstökum atkvæðagreiðslum utan kjörfundar á Spáni vegna komandi alþingiskosninga, líkt og áður hefur komið fram. Með þessu vill utanríkisráðuneytið tryggja þjónustu á svæðum þar sem fjöldi íslenskra ríkisborgara hefur ekki beinan aðgang að kjörræðismanni.

Tenerife og Gran Canaria

Á Tenerife verður kosið dagana 17. og 18. nóvember og fara atkvæðagreiðslurnar fram á H10 Conquistador hótelinu frá kl. 10:00 til14:00 báða dagana. 

Þar verður sömuleiðis boðið upp á að sækja um vegabréf og nafnskírteini, en bóka þarf tíma fyrir það sérstaklega hér

Ræðismaður Íslands á Kanaríeyjum stendur einnig fyrir utankjörfundaratkvæðagreiðslu á Tenerife þann 21. nóvember frá kl. 10:00 til 12:00, sem fram fer í Adeje City Hall, við Calle Grande 1, 38670 Adeje, Tenerife. 

Þá er vakin sérstök athygli á því að kjörræðismaður Íslands í Las Palmas stendur fyrir sérstakri utankjörfundaratkvæðagreiðslu, á suðurhluta Gran Canaria þann 19. nóvember og fer hún fram á veitingastaðnum Why Not Lago? milli kl. 09:00 og 13:00

Torrevieja

Sérstakar utankjörfundaratkvæðagreiðslur vegna alþingiskosninganna verða haldnar á Torrevieja á tímabilinu 20. – 22. nóvember, á Piscina bar frá kl. 13:00 til 16:00 alla dagana. Heimilisfangið er Calle del Gorrión 5, 03189 Orihuela, Alicante. 

Þar verður íslenskum ríkisborgurum jafnframt boðið upp á að sækja um vegabréf og nafnskírteini, en bóka þarf tíma fyrir það sérstaklega hér.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta