Hvað á að gera við allan þennan textíl?
Umhverfis-, orku og loftlagsráðuneytið, Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, SORPA, Hringrásarklasinn og Umhverfisstofnun stóðu í sameiningu að viðburðinum: Hvað eigum við að gera við allan þennan textíl?
Frá árinu 2000 hefur framleiðsla á fötum nær tvöfaldast á sama tíma og þau enda sífellt hraðar í ruslinu. Textíliðnaðurinn er einn sá umfangsmesti í heimi og honum fylgir gríðarleg efnanotkun, ferskvatnsmengun og losun gróðurhúsalofttegunda. Á viðburðinum var kallað eftir nýjum lausnum varðandi ráðstöfun á textílúrgangi og hvernig megi draga úr umhverfisáhrifum af textíliðnaðinum. Hringrásarklasanum hefur verið falið að fylgja verkefninu eftir og getur hugmyndaríkt fólk sett sig í samband við klasann.
Þá hefur Sorpa sett af stað 12 mánaða tilraunaverkefni til að koma upp flokkunarlager til að reyna að auka endurnot á textíl. Markmið með verkefninu er að leita fjölbreytta leiða til að draga úr förgun textíls og flutningi hans úr landi. Verkefnið er styrkt af Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu.
Rauði Krossinn
Við sama tilefni hlaut Rauði krossinn viðurkenningu fyrir vel unnin störf, en undanfarin ár hefur Rauði krossinn rekið umfangsmestu fatasöfnun á Íslandi ásamt samstarfaðilum. Fatasöfnun Rauða krossins hefur verið mikilvægur hlekkur í endurnýtingu á textíl á Íslandi og hefur átt stóran þátt í að vekja almenning til vitundar um textílsóun og hvatt til endurnýtingar og endurvinnslu á fatnaði.
Þá hefur fatasöfnun Rauða krossins einnig unnið með íslenskum listamönnum og hönnuðum sem hafa nýtt notaðan textíl sem hráefni. Þar má meðal annars nefna verkefnið Misbrigði sem er samstarfsverkefni fatasöfnunar Rauða krossins og Listaháskóla Íslands þar sem rannsakaðar eru leiðir til að skapa nýjan fatnað úr ósöluhæfum flíkum með þekkingu og aðferðafræði hönnunar að leiðarljósi en verkefnið er 10 ára í ár.
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Endurnýting textíls er mikilvægur liður í innleiðingu hringrásarhagkerfis á Íslandi. Þörf er á nýjum lausnum fyrir textílúrgangi og þar getur aðkoma Hringrásarklasans, sem við komum á fót í fyrra og sem hefur verið falið að fylgja verkefninu eftir, reynst góð stoð fyrir áhugaverðar lausnir.“