Greiðsluþátttaka vegna tæknifrjóvgunar aukin
Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, hefur birt í samráðsgátt drög að nýrri reglugerð um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tæknifrjóvganir, sem veittar eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands.
Í reglugerðinni er kynnt nýtt fyrirkomulag á greiðsluþátttöku vegna tæknifrjóvgana, auk þess sem greiðsluþátttaka er aukin. Samkvæmt núgildandi reglugerð er greiðsluþátttaka 5% vegna fyrstu tæknifrjóvgunarmeðferðar (24 þús. kr.) og 65% af 2.-4. meðferð (312 þús. kr.). Í drögum að nýrri reglugerð er lagt til að taka upp fastan krónutölustyrk í stað prósentuhlutfalls og að greiðsluþáttaka verði 150.000 kr. fyrir fyrstu tæknifrjóvgunarmeðferð og 400 þús. kr. fyrir hverja meðferð frá 2.-4. meðferð. Þá er sérstaklega tekið fram að tæknisæðing falli undir gildissvið reglugerðarinnar.
Með breytingunum yrði greiðsluþátttaka í fyrstu tæknifrjóvgunarmeðferð aukin sexfalt og þátttaka sjúkratrygginga í meðferðum 2-4 aukin um tæpar 90 þús. kr. í hverri meðferð. Hærri greiðsluþátttaka yrði þeim einstaklingum, sem sækja þessa kostnaðarsömu þjónustu, til verulegra hagsbóta auk þess sem fjárhæð greiðsluþátttöku verður fyrirsjáanlegri en áður með föstum styrkjum.
Umsagnarfrestur er til 2. desember nk. en stefnt er að því að reglugerðin taki gildi 1. janúar 2025.