Kynning á skýrslu um viðskipti með kolefniseiningar
Starfshópur, sem Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, skipaði á síðasta ári til að kortleggja stöðu og tækifæri til viðskipta með kolefniseiningar hér á land hefur skilað tillögum sínum til ráðherra, og verða þær kynntar þriðjudaginn 19. nóvember kl. 10.40, en hægt er að fylgjast með kynningunni í streymi á vef Stjórnarráðsins.
Var starfshópnum falið að skoða hlutverk kolefnismarkaða í íslensku samhengi og leggja mat á helstu áskoranir og tækifæri sem og mögulegan ávinning af verkefnum sem framleitt geta slíkar einingar, auk þess að leggja mat á eftirfarandi:
- Kolefnismarkaði á grundvelli 6. gr. Parísarsamningsins
- Valkvæðan kolefnismarkað – þátttöku íslenskra fyrirtækja, framleiðslu, vottun o.fl.
- Kolefnismarkað og skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum
- Verkefni á sviði föngunar og förgunar kolefnis og tengingu við alþjóðlega kolefnismarkaði
Starfshópinn skipuðu þau:
Jónas Friðrik Jónsson, formaður,
Helga Barðadóttir, sérfræðingur í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu,
Rafn Helgason, sérfræðingur í matvælaráðuneytinu