Hoppa yfir valmynd
20. nóvember 2024 Innviðaráðuneytið

Fyrsta skóflustunga tekin vegna framkvæmda við Ölfusárbrú

Sigurður Ingi Jóhannsson tekur fyrstu skóflustunguna að nýrri brú yfir Ölfusá 20. nóvember 2024. - mynd

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra tók í dag fyrstu skóflustungu vegna framkvæmda við nýja Ölfusárbrú og tengda vegi við brúarstæðið í landi Laugardæla. Ráðherra tók jafnframt þátt í undirritun verksamnings um verkið Hringveg (1) um Ölfusá ásamt Bergþóru Þorkelsdóttur, forstjóra Vegagerðarinnar og Þorvaldi Gissurarsyni, framkvæmdastjóri verktakafyrirtækisins ÞG Verks. Undirritun fór fram í golfskálanum við Svarfhólsvöll að viðstöddu fjölmenni. Nú mun fullnaðarhönnun mannvirkja hefjast en gert er ráð fyrir að undirbúningsframkvæmdir á verkstað hefjist innan skamms. Verklok eru áætluð haustið 2028.

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra: „Nýja Ölfusárbrúin mun auka öryggi og greiða umferða fyrir alla landsmenn um Suðurland. Þá færir hún íbúum Selfoss og Suðurlands aukin lífsgæði með því að umferð þjóðvegarins er færð úr miðbænum. Ný brú þarf að mæta aukinni umferð og standast mikið álag af völdum íslenskra náttúruafla, þ.á m. flóðahættu, ísstíflum og jarðskjálftum. Hönnun brúarinnar sem stagbrú tekur mið af þessu og er því mjög vel til þess fallin að mæta álagi af þessu tagi.“

Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar: „ÞG verktakar eru reyndir verktakar sem hafa byggt nokkrar brýr fyrir Vegagerðina undanfarin ár. Í þessu verki þurfa þeir að reiða sig á hæfni erlendra aðila að auki fyrir svona sérstaka brúargerð. Þeir hafa sett saman teymi með mikla reynslu af sambærilegum mannvirkjum og við höfum því fulla trú á að þeir leysi þetta vel úr hendi.“ 

Þorvaldur Gissurarson framkvæmdastjóri ÞG Verks: „Við hjá ÞG verktökum erum full tilhlökkunar að ráðast í þetta metnaðarfulla verkefni. Bygging Ölfusárbrúar er flókið og krefjandi verk, og um leið glæsilegt mannvirki og mikilvæg samgöngubót.“

Verkefnið Hringvegur (1) um Ölfusá

Ný Ölfusárbrú er hluti af verkefninu Hringvegur (1) um Ölfusá sem felst í að færa Hringveginn út fyrir þéttbýlið á Selfossi. Byggð verður 330 metra löng og 19 metra breið brú, nýr 3,7 km vegarkafli auk um 1 km af öðrum tveggja akreina vegum. Ný vegamót verða gerð austan Selfoss, undirgöng undir Hringveg fyrir gangandi, hjólandi og hestamenn ásamt undirgöngum fyrir bíla og gangandi. Auk umferðar mun brúin bera uppi lagnir veituaðila, rafmagn, ljósleiðara, heitt vatn og kalt.

Ný Ölfusárbrú mun gjörbylta bílaumferð um Selfoss og Suðurland allt. Henni fylgir aukið umferðaröryggi, m.a. með aðskilnaði akstursstefna og styttri ferðatíma. Auk þess dregur verulega úr umferðartöfum og mengun í bænum. Þá styrkir hún atvinnulíf á svæðinu og eflir lífsgæði íbúa og gesta á Suðurlandi.

Núverandi brú var byggð fyrir tæpum 80 árum og hefur þjónað sínu hlutverki með glæsibrag. Hins vegar hefur umferð vaxið gríðarlega hratt á síðustu árum með fjölgun íbúa og ferðamanna á Suðurlandi en daglega fara nú um 14.500 ökutæki um brúna. Til framtíðar má gera ráð fyrir að umferð um svæðið muni aukast enn frekar með fjölgun íbúa og ferðafólks.

Framkvæmdin við nýju brúna er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar og sveitarfélagsins Árborgar og Flóahrepps, auk Landsnets, Selfossveitna, Mílu, HS veitna og RARIK. 

Verksamningur, fjármögnun og framkvæmdakostnaður

Vegagerðin óskaði eftir þátttakendum í samkeppnisútboð í mars 2023. Margir sýndu verkefninu áhuga og fimm aðilar voru metnir hæfir. Þegar tilboð voru opnuð í mars 2024 hafði einn aðili sent inn tilboð; ÞG Verk.  Í framhaldi fóru fram samningsviðræður sem lauk nú fyrir stuttu. Þær samningsviðræður leiddu til frekari hagkvæmni í verkinu frá upphafstilboði.

Um er að ræða alútboð þar sem ábyrgð á endanlegri hönnun mannvirkja er á höndum verktakans og hefur ÞG Verk ráðið til sín hönnuði til að fullhanna verkið. Alþjóðlega hönnunar- og ráðgjafafyrirtækið Ramboll mun hanna brú yfir Ölfusá. Verkfræðistofan Verkís annast hönnun vega, jarðtækni auk annarra brúa og undirganga. VSL, alþjóðlegt fyrirtæki með sérþekkingu í hönnun og byggingu kapalbrúa, mun starfa með ÞG verktökum að verkinu.

Vegagerðin sinnir umsjón og eftirliti með hönnun og framkvæmdum.

Heildarupphæð verksamningsins er 15,7  ma.kr. og hluti af honum er kostnaður veitufyrirtækja og sveitarfélaga sem tóku þátt í útboðinu með Vegagerðinni. Þar sem þetta er alútboð er verkhönnun mannvirkjanna  á höndum verktakans auk framkvæmdarinnar og fjármögnunar framkvæmdanna á verktíma. Hönnun mannvirkja hefst strax að lokinni undirritun og fljótlega hefjast undirbúningsframkvæmdir og uppsetning aðstöðu á verkstað.

Áætlaður framkvæmdakostnaður við byggingu Ölfusárbrúar og tengda vegi í heild sinni er 14,3 ma.kr. á verðlagi ársins 2024. Þar af er brúin talin kosta um 8,4 ma.kr.  Fjármagnskostnaður (verðbætur til verkloka og framkvæmdafjármögnun) vegna lántöku er áætlaður 3,6 ma.kr. Samtals er því heildarkostnaður við verkið áætlaður um 17,9 ma.kr. sem ætlunin er að standa undir með gjaldtöku af umferð.

Framkvæmdin er boðin út á grundvelli laga um samvinnuverkefni, nr. 80/2020. Eins og greint var frá fyrr í vikunni samþykkti Alþingi breytingu á á lögum um samvinnuverkefni um samgönguframkvæmdir sem heimilar að ríkissjóður undirgangist skuldbindingar vegna útboðs á brú yfir Ölfusá og tengdum vegum á hringvegi gegn því að gjaldtaka af umferð um hana standi undir kostnaði í heild eða að lágmarki 50%. Sú heimild er hugsuð sem varúðarráðstöfun og áætlanir gera eftir sem áður ráð fyrir að framkvæmdirnar verði fjármagnaðar að fullu með veggjöldum.

  • Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og Þorvaldur Gissurarson forstjóri ÞG Verks við undirritun verksamnings. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta