Hoppa yfir valmynd
21. nóvember 2024 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Opið fyrir umsóknir um styrki úr Talsetningar- og textunarsjóði fjölmiðlaveitna

Talsetningar- og textunarsjóði fjölmiðlaveitna ER ætlað að styrkja innlenda einkarekna fjölmiðla sem talsetja og texta barnaefni á íslensku með það að markmiði að jafna samkeppnisstöðu þeirra gagnvart erlendum fjölmiðlaveitum og stuðla að vernd íslenskrar tungu. - mynd

Fjölmiðlanefnd hefur auglýst eftir umsóknum um styrki úr Talsetningar- og textunarsjóði fjölmiðlaveitna sem veittir verða á árinu 2024. Umsóknum skal skilað til Fjölmiðlanefndar fyrir miðnætti föstudaginn 29. nóvember nk. á netfangið [email protected]. Frekari upplýsingar um umsóknir má finna hér.

 

Í reglum nr. 1148/2024 um úthlutun styrkja úr Talsetningar- og textunarsjóði fjölmiðlaveitna kemur fram að Talsetningar- og textunarsjóði fjölmiðlaveitna sé ætlað að styrkja innlenda einkarekna fjölmiðla sem talsetja og texta barnaefni á íslensku með það að markmiði að jafna samkeppnisstöðu þeirra gagnvart erlendum fjölmiðlaveitum og stuðla að vernd íslenskrar tungu. Sjóðurinn er starfræktur tímabundið til þriggja ára. Styrkir eru veittir til talsetningar og/eða textunar á barnaefni á íslensku sem er til sýningar á innlendum áskriftarfjölmiðli. Miðað er við að efnið hafi verið frumsýnt síðastliðna 12 mánuði og er þar miðað við dagsetningu fyrrgreinds umsóknarfrests.

Til úthlutunar árið 2024 verða 60 millj. kr. Menningar- og viðskiptaráðherra úthlutar fé úr sjóðnum.

 

Umsóknir um styrk skulu sendar til Fjölmiðlanefndar á netfangið [email protected]. Ekki þarf að fylla út sérstakt eyðublað en í erindi umsækjanda til Fjölmiðlanefndar skal koma fram heiti fjölmiðlaveitu, titill verks eða verka, kostnaðaruppgjör vegna talsetningar og/eða textunar verks eða verka, upplýsingar um bankareikning vegna greiðslu styrks, upplýsingar um tengilið vegna umsóknar ásamt fylgigögnum sem umsækjandi telur nauðsynlegt að fylgi með umsókn.

 

Njóti umsækjandi annarra styrkja fyrir verkefnið skal það koma fram í umsókn.

Umsóknum skal skilað á netfangið [email protected] fyrir miðnætti föstudaginn 29. nóvember nk. Ef spurningar vakna um umsóknarferlið má senda fyrirspurn á sama netfang.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta